ÁSKRIFTARKORT - SMART CARDS
Hvernig virka þau?
Smart kortið er síðasti hlekkurinn í þessu kódapússluspili.
Camið sér um að afkóða grunnkóðunina frá útsendingunni, en þarfnast viðbótar upplýsinga til að geta opnað útsendinguna afruglaða og sækir þær upplýsingar í Smart Card(eða FUNCARD ef þú ert með sjóræningjasystemið). Þær upplýsingar sem Camið sækir inn á kortið(afkóðun, áskriftarupplýsingar og fl.) eru breytilegar frá einni sjónvarpsstöð til annarar, og því til viðbótar breyta stöðvarnar kódunum óreglulega. Þ.e sumar stöðvarnar gera það örsjaldan, eins og t.d Canal Digital á IRTEDO en aðrar gera það á klukkustundarfresti eins og Pink Plus, og svo allt þar á milli.
Kortin er í raun og veru litlir örgjörfar með minni. Örgjörfinn inniheldur virkan hugbúnað. Gögnin sem hann þarfnast(kódar og fl), sækir hann í minni kortsins. Hugbúnaðinn þarf ekki að uppfæra þ.e hann er static eins og það er kallað, hins vegar þarf að uppfæra minni kortsins reglulega, annað hvort með AUTO UPDATE skrá sem komið er fyrir á kortinu og sækir sínar upplýsingar í gegnum gervihnöttinn eða með því að uppfæra minnið handvirkt.
Sértu með ORGINAL KORT (MOSC) þá reiknar kortið út lyklana sjálft þ.e þá er kortið með innbyggt
Auto
Update. Hafirðu hins vegar ekki þessa kóda/lykla, verður þú að uppfæra þá handvirkt á PC tölvu með svokölluðum FILE EDITOR.
Hér neðan við gefur að allar helstu gerðir ORGINAL SMART KORTA
MOSC
(Modified Original Smart Card).
Eins og með öll kort, er hægt að breyta MOSC líka, en vitir þú ekki nákvæmlega hvað þú ert að gera, ráðlegg ég þér að láta þau í friði. Það er hægt að eyðileggja þau með röngum aðgerðum.
|