Hversu oft segir maður ekki...
“Ég vildi að ég gæti verið með myndir af öllum krökkunum/barnabörnunum... en það er bara svo vont að festa upp myndaramma eða þá að það er límklístur um allt” - *** Húsbílaramminn er lausnin***      Deila og Bókamerkja

Flestir vilja vera með myndir af ástvinum, börnunum, barnabörnunum, nú eða vinum, hjá sér í húsbílnum, hjólhýsinu eða fellihýsinu.

En þangað til nú hefur þetta verið ákveðið vandamál. Hristingur og viðkvæmar innréttingar eru kannski ekki kjörstaðir fyrir venjulega myndaramma með gleri.

Húsbílaramminn leysir þetta vandamál. Þú einfaldlega flettir glærri filmu aftan af rammanum, setur venjulega ljósmynd í rammann og festir rammann þar sem þú vilt. Má vera á bognum fleti, eins og skáphurðum, hrjúfum fleti, ískápnum, baðhurðinni, eða bara þar sem þér best hentar.

Þú getur síðan tekið rammann og fært hann og skipt um myndir eftir tilefnum, aftur og aftur... og engar límklessur eða för.


Húsbílaramminn er silfurlitaður með glansáferð (má strjúka af með rakri tusku) og er aðeins 2mm. á þykkt svo ramminn er aldrei fyrir neinu. Heildarstærð rammanna er: 14,5 x 19,5 cm.(fyrir 10x15 ljósmyndir)
Rammarnir eru seldir 2 saman í pakka og kostar pakkningin kr. 1990.- (sendingarkostnaður innifalinn.)



Hægt er að greiða í vefversluninni, með bankainnleggi og/eða með kreditkorti á öruggri 128bita læstri greiðslusíðu. Ef ykkur er, þrátt fyrir öryggið, illa við að nota kreditkort á vefnum, þá er ykkur velkomið að hringja til okkar( Steini eða Helga) í síma 893 5804, milli kl. 13 og 23 alla daga vikunnar, og við tökum þannig niður kortaupplýsingarnar.

Einnig getið þið lagt inn viðeigandi upphæð á eftirfarandi reikning:
0586 - 26 - 150 | Kt.: 030358-2879
og sent okkur e-mail á steini@husbill.com
eða hringt í 893 5804 og við sendum þá rammana um hæl.



Vefverslun Versla.Com | Þorsteinn Gunnarsson, Fossheiði 5, 800 Selfoss | Sími 893 5804 & 893 6804 | Banki 0586-26-150 | Kt.: 030358 - 2879