Samanburðarlisti yfir brennara og hugbúnað þeirra

Niðurstaða tímamælinganna

Menn hafa misjafnar skoðanir á því hvaða brennarar séu bestir og/eða hraðvirkastir. Því miður er raunin sú að í mörgum tilfella hefur brennarinn sjálfur minnst með hraðann að gera, heldur er það hugbúnaðurinn og afl tölvunnar sem ræður úrslitum. Þó er nýjasti brennarinn frá Infinity, þ.e USB Unlimited sá hraðvirkasti á markaðnum í dag(20.feb 2005) Sá brennari er eingöngu USB tengdur(Styður USB 2.0 Full Speed), styður allar gerðir korta og er vel þjónustaður eins og alar vörur frá WB Electronics, sem er framleiðandi Infinity brennarana, sem hafa verið vinsælustu brennararnir síðustu árin. Þessi brennari er með Íslensku í tungumálavali hugbúnaðar og afar einfaldur í notkun.
Hér fyrir neðan er til gamans gamall samanburðarlisti yfir hinar ýmsu gerðir brennara svona rétt til að gefa mönnum hugmynd um mismunandi brennslu tíma á milli tegunda.

Ég hef prófað brennsluhraða margra hugbúnaðarpakka og brennara á misjöfnum gerðum tölva og notað margar kortatýpur. Í öllum tilfellum voru notaðar 2 skrár á mismunandi PIC kort þ.e. (PIC & Eeprom), en á Funkortin voru notaðar 3 skrár þ.e. (Flash, Internal- & External Eeprom)

Smellið á hausana í töflunni til að endurraða eftir því sem þurfa þykir!
Hugbúnaði og Brennurum er hægt að raða eftir stafsröð, en því að smella á viðeigandi kort raðast hugbúnaður og Brennarar eftir mesta eða minnsta brennsluhraða(smella aftur).


Forrit (A-Ö eða Ö-A) Brennari (A-Ö eða Ö-A) Fun  Gold  Silver 
CardMaster 2.0 Mini Millenium & Chipdrive Mini 0:36  2:30 
CardMaster 3.12 CardMaster USB 0:55  0:29  1:05 
CardMaster 3.07 Millenium Micro 106 2:08  0:45  1:46 
CardMaster 3.07 Millenium Micro 206 1:46  0:28  1:16 
CardPro 1.0.2.0 MultiProg USB 0:40  0:14  0:58 
CardPro 1.1.0.15 MultiProg 1:13  0:29  1:33 
CardWriter 1.87 MasterA III & MasterCRD 2 4:11  2:45  13:49 
Chipcat 2.3 MasterA III & MasterCRD 2 2:18  1:24 
Digitech Digitech USB Programmer 0:34  0:12  0:40 
DMSSC 1.03 MasterA III & MasterCRD 2 0:58  0:40  2:12 
FunMagic 1.40 Fun Programmer Parallel 1:25 
FunProm 2.47 Fun Programmer Parallel 1:25 
Gold 140 Gold Programmer 1:12 
Gold Mate PC Plus Gold-Mate PC ** 0:17  1:11 
Infinity 1.20 Infinity USB (verify ON) 0:34  0:12  0:39 
Infinity 1.30 Funprogrammer USB (verify ON) 0:32 
Infinity 1.35 Infinity USB Phoenix (verify ON) 0:31  0:12  0:40 
MasterBurner 1.7 MasterCRD-2 Programmer *** 2:16  0:37  2:14 
MasterBurner 1.7 MasterUSB Programmer 2:07  1:20  5:20 
MasterBurner 2.3 MasterUSB Plus Programmer 0:37  0:19  2:02 
MiniSDK 2.2 Beta CLaNZeRS MiniSDK 1:12  0:16  0:53 
MultiPro 0.60 Elvis (Multiprog 3.5) Programmer 0:58  0:58  2:12 
SC-Quickburner 2.997 SC-Master Phoenix 0:45  0:22  1:20 
Twoprog 2.3 Public Beta 2 Multiprog 2001 XL 1:43  0:44  2:46 


Ég hef prófað margar gerðir hugbúnaðar með hvrt tveggja MasterA III og Master CRD og það kom í ljós að brennarinn hafði ekkert með brennsluhraðann að gera. Mismunur á hraða kemur eingöngu vegna afls tölvunnar sem brennt er af. Þú mátt því búast við svipuðum brennslutíma á VX Multi & VP-20/DL-20 og hins vegar MasterA & MasterCRD.
Það sem þú getur hins vegar EKKI séð á þessari töflu, og koma á óvart, er hversu misjafnar tölvurnar geta verið eftir því hvort brennt er í gegnum serial eða paralell kapal. T.d. var gamla ferðatölvan, sem er með Win 98, að jafnaði hraðvirkust í serial brennslunni en langhægust í paralell brennsu

* Brennslutímar CardWriter þarfnast nánari skýringa.
Allur hugbúnaður var prófaður í Write Only mode, og því var ekki um að ræða VERIFYING. CardWriter á hinn bóginn gerir manni ekki kleyft að velja um að sleppa verifying svo í hans tilfelli er einnig um verifying að ræða. Og það sem meira er CardWriter kemur með verifying comment á meðan á brennslu stendur og í þeim tilfellum byrjar hann brennslu aftur frá byrjun. CardWriter tímarnir á Silver Cardinu í töflunni hér að ofan er til að mynda með 2 endurræsingum á annarri skránni en 3 á hinni vegna þessa.

**Vegna brennslutíma á Gold-Mate PC:
Til þess að geta forritað/brennt eitthvað á kortið með Gold-Mate verður þú fyrst að fylla minnis-bufferinn. Þetta er annað hvort gert með hugbúnaðinum eða með því að láta hugbúnaðinn lesa annað kort. Því þarftu í raun að bæta við þeim tíma, sem það tekur að senda skrárnar í buffer minnið, við nettó tímana í töflunni hér að ofan.

Viðbótartíminn væri sem hér segir:

  Goldcard Silvercard
Hlaða inn buffer 10-11 sec. 50-53 sec.
Lesa kort 13-14 sec. 41-42 sec.


*** Um MasterBurner hugbúnaðinn:
Ef þú notar einhvern brennara annan en MasterCRD, MasterUSB eða SC-Master, þarftu að stilla MasterBurner handvirkt á milli skráa. Í þeim tilfellum lætur hugbúnaðurinn þig vita en vegna þessa er óhætt að bæta minnst 5 sekúndum við nettó brennslutímann í töflunni hér að ofan.

Unnið og þýtt upp úr samsvarandi töflu á www.duwgati.com