SÖLUAÐILAR
   KÓDAR
   NYTSAMT
   ÁHUGAVERT
Leiðbeingar um forritun/brennslu með Infinity USB

Áður en þú hefur leikinn verður þú að vera með brennarann tengdan við usb tengi á pc tölvunni með hefðbundnum A-B usb kapli(Fylgir ekki með í kaupum)

Ok hefjum leikinn...

Hér gefum við okkur það að notað sé Funcard 4/5/ 6 og 6in1 skrá(frá Xamuh), og að þið hafið innsett hugbúnaðinn á tölvuna hjá ykkur.



Ræsið forritið, og stingið Funcardinu í brennarann með snertur kortsins vísandi niður. Sé hugbúnaðurinn, eins og myndin hér neðan við sýnir, með ensku umhverfi, byrjum við á því að smella á hnappinn OPTIONS og velja LANGUAGE



en þá poppar upp glugginn hérna neðan við



hér veljum við ÍSLENSKA, smellum á OK


og þá ætti umhverfið að líta svona út.




Við skulum byrja á því að stilla valmöguleikana, en það er gert með því að smella á Valmöguleikar og velja Almennir



Haka síðan við eins og sýnt er á myndinni hér neðan við og velja síðan Auknir Möguleikar

...haka við eins og sýnt er... (Bláa gaumljósið á brennaranum er stillt með rennisleðanum neðst)



Síðan að smella á OK


Jæja þá er að hefjast handa við forritunina

Smelltu á efstu möppumyndina(Sýnd Rauðlituð)



og þá opnast File Open gluggi svipaður þessum hér neðan við

Hér áttu að velja Flash-skrána sem brenna skal á kortið og smella síðan á Open

Síðan smellir þú á neðstu möppumyndina (Sýnd Rauðlituð)



...velur Ext EEprom skrána of smellir á Open



og þá ætti þetta að líta svona út:



Smelltu svo á hnappinn BRENNA



Á þessum myndum sést hver framvindan er og eins hver niðurstaða villutékks er að brennslu lokinni.



Síðan er smellt á hnappinn Lokið, kortið tekið úr brennaranum og rekið í afruglarann og... tóm hamingja :-)