UNDIRSTÖÐURNAR
Hvað þarftu til að geta horft á gervihnattasjónvarp?
1. Gervihnattadisk til að fanga útsendingu gervihnattarins. Annað hvort fastan disk sem vísar á einn gervihnött eða þá mótordrifinn snúningsdisk sem snýst á milli hnatta eftir því hvaða hnöttur(sjónvarpsrás) er valin(n). Notirðu snúningsdisk þarf móttakarinn annað hvort að hafa innbyggða mótorstýringu eða þá að styðja við staka mótorstýringu sem keypt er sérstaklega.
2.
LNB (stundum einnig callað converter) sem umbreytir útsendingarmerkinu yfir í sjónvarpsmerki sem flytjanlegt er með coaxkapli til móttakarans.
3. Hefðbundinn gervihnattamóttakara.
Síðan eru hægt að gera tölvert til að auka möguleikana!
4.
CI
/
CAM(afruglara)
til að afrugla ruglaða útsendingu.
5. Smart card(Til dæmis FUNKORT, TITANCARD, OPOS eða önnur svipuð sem veita þér aðgang að lokuðum rugluðum útsendingum í gegnum kóðun á kortinu. Nú eða síðast en ekki síst... áskriftarkort.
Smá grunnupplýsingar:
1. DISKURINN
Veldu gerð disksins sem þú kaupir vandlega. Leitaðu leiða til að finna notendur af þeirri gerð er þú hyggst kaupa, t.d. með því að leggja fram fyrirspurninr á spjallborði Skrifa.com. Og athugið að það þarf oft að velja misjafna stærð disks eftir því hvar á landinu á að nota hann. Erlendis eru menn varaðir til jafns á að kaupa of stóran disk, eins og of lítinn. Það er vegna þess að sumstaðar erlendis er merkið svo sterkt að myndin hálf glóir á sjónvarpinu, ef diskurinn er of stór. Á Íslandi er þetta ekki vandamál. Hér kaupa menn gjarna diska á bilinu 120 - 150cm. Stærri diskar eru einfaldlega of dýrir til að ná útbreiðslu.
Einnig eru menn ekki sammála um hvort skuli valinn fíberdiskur eða stál/ál diskur. Fíberdiskarnir eru dýrari, og mögulega eru þeir endingarbetri. Hins vegar er jafnvel sterkara signal af málmdiskunum og spurning hvort ekki er eins gott að spandera lítið hærri upphæð fyrir 150cm stáldisk eins og 120cm fíberdisk. En það er með þetta eins og margt annað í þessum geira að oft ráða trúarbrögð meiru en haldbær rök.
2. LNB neminn
LNB neminn (converterinn) fangar merkið sem diskurinn safnar, umbreytir því í sjónvarpsmerki og sendir móttakaranuum. Það eru til margar gerðir LNB nema. Algengast er að nota Universal LNB. Þeir eru gerðir til móttöku á flestum tíðnum sem allir helstu hnettirnir eru að senda svo sem: ASTRA - HOTBIRD - SIRIUS og THOR. LNB nemar eru skráðir með mishátt suðfilterunarstig og eru þeir gjarna sagðir á bilinu 0,3-0,6dB og taldir betri eftir því sem þetta mælist lægra. Þ.e 0,3dB er sagður betri en 0,6dB. Hins vegar virðist engin samræmdur staðall vera um mælingar á þessum nemum svo það er lítið hægt að fara eftir þessu enn sem komið er, en menn versla gjarna 0,3 - 0,4dB.
3. MÓTTAKARINN
Einföldustu móttakararnir eru svokallaðir FTA Móttakarar. FTA er skammstöfun á Free To Air. Sem sagt... opnar ókeypis stöðvar. Kaupirðu slíkan móttakara verður þú að vona að slíkar sendingar verð í gangi til framtíðar. Þar hafa þjóðverjar verið einna duglegastir útsendinga en oftast er allt efni á þýsku. Einnig sakar ekki að hafa gaman að Sjónvarpsmörkuðum og alls kyns auglýsingaskrumi sem sent er út frítt á flestum tungumálum heimsins og getur gert hvern mann vitlausan.
Hins vegar er þumalputtareglan sú að ef eitthvað er varið í útsent efni er það sent út ruglað, og viljir þú eiga möguleika á að horfa á það þarftu að vera með afruglara. Slíkir afruglarar eru kallaðir CAM (Conditional Access Module) og/eða C.I MODULE(Common Interface module)
4. AFRUGLARAR - CI MODULE/CAM
Afruglararnir eru ýmist kallaðir CAM (Cöm í fleirtölu) MODULE, CI MODULE, eða bara AFRUGLARAR. Allt eru þetta sömu tólin þó menn venji sig á misjafnar nafgiftir.
C.I(Common Interface) er semsagt slottið(raufin) sem CAMIÐ(Afruglarinn) er settur í. Þessi CÖM eru hefðbundin PCMCIA module eins og notuð eru einnig á fartölvum. Hins vegar eru sumir móttakarar búnir innbyggðum afruglara og eru þá eingöngu með rauf fyrir kortið til að renna í. Ekki ólíkt raufunum í hraðbönkunum. Sé sú raunin með móttakara þá er það kallað að hann sé með innbyggðum afruglara(EMBEDDED).
Afruglari CAM, er sem sagt nauðsynlegur hvenær sem ruglað signal skal afrugla.
Hér getur að líta nokkur algengustu ruglunarsystemin:
Alphacrypt,
Conax,
Cryptoworks,
Irdeto,
Nagravision,
Seca,
og
Viaccess.
Það eru til sérstakir Afruglarar/CÖM fyrir allar þessar gerðir.
Síðan eru komnir á markaðinn forritaðir AFRUGLARAR(MULTIKÖM) sem geta hver um sig opnað fleiri en eina gerð afruglunar og eru algengust gerðir þeirra: DRAGON CAM, X~CAm, MATRIX og MAGIC CAM. Þessi köm sem flest innihalda 2MB mynn, eru forrituð ýmist með sérstökum forritunareiningum og/eða Funkortum. Þá er hugbúnaðurinn settur á kort og síðan er kamið látið innsetja hugbúnaðinn og geymir hann eftir það ásamt lyklaskrám svo ekkert kort þarf í kamið eftir það til að opna rásirnar.
5. KORTIN
Að afkóða sjálfa grunnkóða útsendingarinnar eitt og sér dugar þó ekki alltaf, því þú þarft í raun að vera með réttan 'lykil'. Hafirðu hann ekki, kemur upp svartur skjár með leiðinda villuskilaboðum um að þessi rás sé SCRAMBLED(RUGLUÐ). Og það er akkúrat það sem hún er. Útsendarinn notar grunnkóðun sem er er samhæfð öllum þeim sem nota sama afruglunarkerfi. Ofan á það notar svo hver útsendari sitt eigið ruglunarformat(Scrambling SYSTEM).
Og þar koma kortin inn. Þau þurfa að innihalda RÉTTAN LYKIL/LYKLA
til að opna sendinguna. SJÁ HLEKKINN [ FUNCARDS ]
SVO HVERNIG VIRKAR ÞETTA ÞÁ EIGINLEGA???
Ókóðaða útsendingu er hægt að taka á móti sjá á öllum venjulegum móttökurum
og breyta yfir í sjónvarpsmerki.
Kóðuð merki, sem eru þó EKKI RUGLUÐ, er hægt að sjá eigir þú móttakara sem hefur eiginleika til að afkóða þetta tiltekna merki. Þ.E ef sjónvarpsstöð sendir út í t.d SECA og þeir áhveða að senda út eina kynnigarrás á efni stöðvarinnar óruglaða, þá getur þú horft á þá rás sértu með móttakara sem er með SECA afruglara hvort sem hann er innbyggður eða stakur í CI sloti. Sértu hins vegar eingöngu með t.d. IRTEDO afruglara getur þú ekki horft á þessa rás.
|