CONAX Camið

Conax er hannað og framleitt af Norska fyrirtækinu TeleNor. Algengasta gerð þessa nefnist Conax 4.00e(Euro) einnig kallað EuroCam.

Þetta er afruglunarkerfi sem lengst af hefur þótt óbrjótanlegt. Það urðu því margir glaðir á dögunum þegar loks fannst lausn á því að opna rásir ruglaðar með conax og héldu menn að nú væri komin betri tíð með blóm í haga. En þeir Conax menn breyttu þá um kóda og síðan hefur hvorki gengið né rekið. Menn eru hins vegar út um allan heim að leita leiða og kannski skilar það sér áður en yfir líkur.


Conax er mest notað til þess að horfa á Skandinavíska áskriftarpakkann Canal Plus, en einnig eru nokkrar stöðvar frá Slóvakíu ruglaðar með Conax.

Til þess að horfa á þessa pakka þarftu hvort tveggja Conax Cam og Conax kort. Áskriftar kortin eru fáanleg hjá Canal Plus ef þú ert með heimilisfang í Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi eða Noregi en við Íslandingar getum ekki gerst áskrifendur. Alla vega ekki löglega. Kiosk rásirnar 22 eru síðan PPV(Pay Per View) þ.e kvikmyndastöðvar þar sem þú pantar /kaupir tiltekna kvikmynd og getur síðan horft á hana innan tiltekins tíma. Og það er vegna þessa PPV kerfis sem skandinavíubúar einir geta gerst áskrifendur að Canal Plus.

Nú er einnig hægt að forrita/brenna Titanium kort með þartilgerðum skrám og nota Conax Camið sem Nagravision Cam t.d fyrir Polsat stöðvarnar á Hotbird 13°E
Þær stöðvar sem þannig opnast eru:
Playboy - TV/Info - Adult Channel - Polsat 1 - 4 - Fox Kids - Polsat Sport - Discovery - Animal Planet - Reality TV - Travel - CNN INT - TV PLUS - CARTOON NETWORK - EUROPA EUROPA - CLUB - TVP 1 og TVP 2.

DreamCard er síðan ein leið sem menn fara, en hún er hvort tveggja ólögleg og ansi dýr. Þetta eru kort sem keypt eru erlendis frá og opna allt á Thor 1°W ásamt Kiosk bíómyndarásunum og eru því sannkölluð DraumaKort. Hins vegar veit í raun enginn hversu lengi menn fá notið þeirra þar sem að ekkert ábyrgðarskírteini er gefið út þegar þau eru seld. Hérlendis hafa þessi kort verið seld fyrir 50 þúsund og finnst nú mörgum það full stór biti að kyngja.