Hvernig forrita skal Dragon Loader Card með CIW LOADER DRAGON hugbúnaðinum
 - Þú þarft:
- Pc tölvu
- 6,0Mhz Phoenix / Smartmouse brennara,
- Dragon Loader Card
- Predator.DRA skrá
- og að sjálfsögðu CIW LOADER FORRITIÐ [ SÆKJA]
|
Þetta verður ekki mikið einfaldara
Forritið athugar með .DRA skrána að hún sé í lagi og sýnir annað hvort grænan
broskarl eða rauðan, eftir hvort á við. Einnig koma fram skilaboð í neðri hvíta glugganum sem gefa til kynna hver staðan er hverju sinni.
DRAGONINN UPPFÆRÐUR:
Síðan eftir forritunina er kortið sett í Dragon kamið(sem haft er í móttakaranum og gætt að því hann sé á opinni rás(FTA=FreeToAir))
Móttakarinn er nú endurræstur(Standby OFF/ON)
Farið inn í CI menu(Common Interface) og slottið(kamið) valið(þá kemur fram að það
sé í DRAGON LOAD) - Smellt á OK
Móttakarinn býður þér nú að 'download to module' ... þú smellir á OK
Móttakarinn hleður nú inn hugbúnaðinum(þarft að smella á OK til að sjá hvernig gengur í %)
Síðan kemur melding ' Programming successfull'... þú tekur kortið úr kaminu og endurræsir.
Dragoninn er þá klár í hvað sem er:-)
Kv. Steini
|
|
|