HVERNIG GERA SKAL VIÐ DRAGON LOADER CARD
Dragon Loader kortin eru ýmist byggð á 'Fun7'(stendur þá á þeim *Fun7 eða t.d Prussian 5 sem er sama kort) eða 'Singel pic' og bera þau þá einkennisstafina F84A. Einnig eru til kort sem ekki eru áprentuð og eru þá oftlega Fun 7 sem skella má þá hugbúnaði á, svo virkja megi þau sem Dragon Loader Cards. Hér er notaður Infinity USB/Phoenix brennari til viðmiðunar
Ath! Í Infinity USB/PH... farið í VALMÖGULEIKAR...AUKNIR VALMÖGULEIKAR og HAKIÐ út ÖLLU svo brennarinn skynji kortið ekki sjálfvirkt, en það eyðileggur hugbúnaðinn á t.d Dragon Loader Card og eins er það slæmt fyrir önnur OS kort.
Hvernig fer þetta fram?
FUN 7 based Kort
1) Veldu PrussianCard 5 í kortavalsglugganum
2) Smelltu á EYÐA og bíddu eftir að sú aðgerð klárist
2) Smelltu á Flash skráarvalshnappinn(efstu gulu möppuna) og veldu skrána repair.hex
3) Smelltu á BRENNA - Þegar þeirri aðgerð er lokið....
4) Settu brennarann þá í Phoenix ham og 6.0 Mhz.
5) Kveiktu á DragonLoad.exe og brenndu viðeigandi .DRA skrá á kortið
F84A - Pic based Kort
1) Veldu Waferard 16f84(A) (öðru nafni singelpic), í kortavalsglugganum
2) Smelltu á EYÐA og bíddu eftir að sú aðgerð klárist
2) Smelltu á Pic skráarvalshnappinn(efstu gulu möppuna) og veldu skrána LOAD2MB.HEX
3) Smelltu á BRENNA - Þegar þeirri aðgerð er lokið....
4) Settu brennarann þá í Phoenix ham og 6.0 Mhz.
5) Kveiktu á DragonLoad.exe og brenndu viðeigandi .DRA skrá á kortið
[ SÆKJA VIÐGERÐARSKRÁRNAR ]
|
|
|