SÖLUAÐILAR
   KÓDAR
   NYTSAMT
   ÁHUGAVERT
PENTACARDS VR2 - DREAMCARDS

PentaCard VR2 - Pentacard vr2 er eldri útgáfa Pentunnar og eru það kort sem svo sem engum stuðningi er lofað á , svona til framtíðar. Þessi kort líta oftast eins út og Penta vr3 en einnig er algengt að þau séu gráleit. Það er ekki hægt að finna grunnhugbúnaðinn fyrir þau en enn sem komið er hafa þó fengist update fyrir þau.

Omega - Omega, eða stundum kölluð nesat kortin ,sem fengust í nokkra daga í vor, eru í raun Penta vr2 og gilda sömu uppfærslur um þau og hin sem að ofan getur.

DreamCard voru gömlu C*N*X kortin kölluð og opnuðu þau allar stöðvar á Thor á 1°w. Þessi kort vor forrituð/framleidd erlendis og opnuðu einnig Kiosk PPV bíómyndaráirnar og voru því sannkölluð DraumaKort.

Þessi kort kostuðu 280 GBP erlendis og virkuðu skammlaust í 3- 4 ár. Þannig að þeir sem keyptu þau fengu svo sannarlega peninganna virði.

Hér til hliðar er gamal Dreamcard...gjörsamlega hokið af reynslu og orðið vel bakað af langri vist í Conax 3.03 cami

Þessi kort líkjast í ytra útliti venjulegu Basic Cardi en notast við annan hugbúnað. Hérlendis eru þessi kort seld fyrir 50 þúsund og finnst mörgum það full stór biti að kyngja.