SÖLUAÐILAR

   KÓDAR

   NYTSAMT

FRÉTTIR AF SKRIFA.COM - 2002


[ 30. des ]
Vorum að setja upp heljarinnar [ TV GUIDE ] fyrir dagskrá allra gervihnattastöðvanna. Margir valmöguleikar svo sem eftir: BÍÓMYNDARÁSUM, TÓNLISTARRÁSUM, SJÓNVARPSRÁSUM, FRÉTTARÁSUM, PAY PER VIEW RÁSUM og fleiru og fleiru.

Athugið að TV-GUIDinn opnast í nýjum browser sem þú lokar bara eftir notkun.

[ 23. des ]
Vorum að henda inn pay tv pökkunum: Via Digital, 30.0°W, Viasat, 5°E og VisAvision, 8 °W svo nú er bara eftir sá síðasti þ.e Yes, 4 °W og mun ég klára hann um leið og tími gefst til. [ LISTUNIN ] Athugið að efst á síðunni er listinn yfir hnettina, þá yfir afruglunarkerfin og neðst eftir pökkunum. Þið smellið svo bara á viðeigandi hlekki til að fá upp sérsíðurnar.

[ 18. des ]
Vorum að bæta inn síðunni [ SAMANBURÐUR ] um gervihnattamóttakara. Þetta er tafla fengin að láni einhverstaðar og er góð til samanburðar á tæknimöguleikum misjafnra móttakara en er samt ekki heilagur pappír. Ath! Taflan opnast í nýjum glugga sem þú lokar eftir notkun.

[ 15. des ]
Vorum að uppfæra [ BRENNARAR ] og bæta inn umfjöllun um INFINITY USB brennarann og hugbúnaðinn fyrir hann. Einnig hlekkur á nýjustu útgáfuna af hugbúnaðinum.

[ 13. des ]
Vorum að setja upp síðuna [ LISTUNIN ] þar sem hægt er að skoða alla hnetti frá 42°E - 36°W og eins hægt að skoða listun eftir áskriftarpökkum og/eða eftir afruglunarkerfum. Athugið efst á síðunni er listinn yfir hnettina, þá yfir afruglunarkerfin og neðst eftir áskriftarpökkunum. Þið smellið svo bara á viðeigandi hlekki til að fá upp sérsíðurnar.

[ 30. nóv ]
Vorum að setja upp gengisreikninn - handhægt þegar maður er að gera verðsamanburð úr ólíkum gjaldmiðlum og þarf að snara gjaldmiðli yfir í íslenskar krónur. [ GENGISREIKNIR ]

[ 30. nóv ]
Auglýsingasíðan er komin upp. Verið nú dugleg við að smella inn auglýsingum um allskona hluti tengda gervihnattadótinu. Það er aldrei að vita nema einhvern annan vanti þetta. [ AUGLÝSINGAR ]

[ 29. nóv ]
Hef fengið ábendingar um að Magic Cam(Magic Module) Ver. 1.03, sem haldið var fram að væri ekki fyrir Evrópumarkað, virki fínt. Hins vegar skal mönnum bent á að athuga hvort modulið hafi ekki örugglega 3-D lable(Þrívíddar merkimiða) að aftanverðu. [ SJÁ MYND ] sem er vísbending um að modulið sé orginal framleiðsla.

[ 22. nóv ]
Var að smella upp dagskrárborða (sjá ofan við) Það væri gott að heyra frá ykkur hvort hann birtist á öllum kerfum(lesist XP)

[ 22. nóv ]
Var að uppfæra síðuna ÁSKRIFT og er þar kominn með öll þekkt áskriftarkort og tengla á transponderana og tíðnir.

[ 21. nóv. ]

Er að vinna í samanburðarsíðu fyrir Öll Multi Cöm-in, þ.e. Magic Cam, Universal Cam, Global-, All-, Kid Cam og þá flóru alla. Kemur upp eins fljótt og tími vinnst til.