
FRÉTTIR AF SKRIFA.COM - APRÍL - MAÍ - 2003
[ 26. maí 2003 ]
Jæja þá er PhillsFiles að komast í gagnið aftur og er síðan sjálf komin upp og kódarnir að byrja að koma inn. Þetta er enn snyrtilegri síða en sú síðasta og eiga þeir félagar heiður skilinn.
Kv. Skrifarinn
[ 22. maí 2003 ]
Enn er svo sem ekkert að frétta af conaxmálum en hérna kemur svona til gamans, skýrt af leikmanni, hvers vegna Conaxinn datt út um daginn. Canal Digital(CD) hefur verið verið að uppfæra hjá sér áskriftakortin síðustu vikur og mánuði með hvort tveggja Operation Key(OP)20 og OP 21 sem hefur verið þekktur síðustu mánuðina. Þetta hafa þeir gert með því að senda nýju lyklana(kóðaða auðvitað) á kortin þeirra í gegnum sameiginlega addressu á kortunum((SA) shared address), og það geta verið þúsundir korta í hverri SA grúppu.
Þekktir Master Lyklar/Keys(MK) þ.e Key 10, sem notaður hefur verið af hökkurum til að afkóða nýju OP lyklana(Key 20/21) tiheyra allir sérstakri SA grúppu.
Öll þessi kort sem eru í þeirri SA grúppu sem við höfum haft Master lykil að(MK) hafa eingöngu verið að taka á móti uppfærslum á gamla lyklinum 21, en ekki uppfærslum á nýja lyklinum, lykli 20. Allar aðrar SA grúppur hafa verið að taka á móti öpdeitum á hvoru tveggja, þ.e bæði 20 & 21.
Þetta þýðir að CD veit/vissi hvaða kort innihéldu lykilinn sem hafði verið hakkaður og innihéldu MK-inn þeirra og hver ekki. Og nú hafa þeir semsagt hætt að 'tala við þau kort' sem innihalda lykil 21.
Þetta skýrir einnig hvers vegna enginn þekkti í raun lykil 20 þegar skiptin áttu sér stað, nema hugsanlega að einhver hafi átt MK hakkaðann af korti úr annarri SA grúppu og sé viljugur til þess að birta nýja 20 lykilinn.
En það er sem sagt ekki öll von úti. Mikið af upplýsingum hefur verið aflað með því að scanna(m/logger) öll samskipti sem fram hafa farið á milli CD og korts, á þeim tíma sem Conax hefur verið opinn og kannski munu þær upplýsingar reynast betri en engar þegar upp er staðið til og gefa okkur kost á nýju lyklunum.
Og kannski eru þessar upplýsingar til nú þegar.. alla vega vonum við það besta... Kv. Skrifarinn
[ 20. maí 2003 ]
Jæja kl. 10:18 í morgun slokknaði á Conaxinum. Nú er það bara spurningin hversu fljótt lausn verður fundin á nýju kódunum, en eins og þið vitið hafa þeir verið að senda út ný kort undanfarnar vikur. Að vísu hafa samskiptin á nýju kortunum veið skönnuð svo það er ágætis von. Á meðan verðum við bara að sinna konunni og garðinum... og sætta okkur við rest. Kv. Steini.
[ 20. maí 2003 ]
Að gefnu tilefni er [:: HÉR ::] mynd af bakhluta Magic Module Rev. 1.05 ( P/N : 8106/2003 ) Samkvæmt Magigtrance er þetta sama cam og 1.03 & 1.04 orginal nema að þetta er framleitt í Taiwan. Samkvæmt öðrum heimildum á þetta cam að ganga heldur lkaldara en fyrirrennarar þess, en það er ...eins og annað birt án ábyrgðar. Kv. Steini.
[ 20. maí 2003 ]
Hérna getið þið séð hvernig viðgerð á Magic Cam fer fram - Athugið! Þetta er birt til skemmtunar en ekki til að hvetja ykkur til að reyna þetta heima... [ SMELLTU HÉRNA ] Kv. Steini.
[ 19. maí 2003 ]
Var að setja upp link(Sjá ofan við) þar sem þið getið sent vinum og kunningjum boðskort um heimsókn á skrifa.com. Þetta skýrir sig sjálft og það kemur fram í e-mailinu sem vinirnir fá... hver sendandinn er þ.e, þitt e-mail. Vonandi hjálpið þið mér að kynna síðuna fyrir sem flestum. Kv. Steini.
[ 18. maí 2003 ]
BBC hefur staðfest að töf verði á því að þeir hefji FTA útsendingar á Astra2, til 14. júlí(í stað 31. maí) á meðan ITC tekur ákvörðun varðandi staðsetningu í EPG(Electric program guide) þ.e hvort þeir eigi að smeygja sér inn í röðina á milli SKY og BBC, en SKY hefur hótað að færa aðalrásir BBC neðar í epg-inu ef þeir BBC menn nota ekki afruglunarkerfið þeirra hjá Sky
BBC hefur verið með tilraunaútsendingar á Astra 2D á 10.773GHz/H (22000, 5/6) og 10.804GHz/H (22000, 5/6) Kv. Steini.
[ 18. maí 2003 ]
Athugið! Það er náungi á netinu sem kallar sig "Ivan Pokit" á hinum ýmsu spjallborðum þar sem hann býður Seca2 kort til kaups. Þetta er svikamylla og hefur honum verið úthýst á mörgum svæðanna undanfarna mánuði, en alltaf reynir hann aftur og aftur og hefur skráð sig undir hinum ýmsu nöfnum svo sem: Ivan Pokit,1van Pokit,IVANPOKIT,1VANPOKIT. Það nýjasta sem hann hefur notað er: "1VAN" - SVO VARIST SVIKAHUNDA - Kv. Steini.
[ 17. maí 2003 ]
Er búinn að bæta inn MGM í TV guidinn hérna efst á síðunni og er sú rás undir 'Þýzkar'. MGM sendir þetta allt út á ensku svo það er allt í lagi að horfa á eina og eina gamla og góða þarna. Þegar síðan opnast hakar þú einfaldlega við mgm eða hverja þá stöð sem þú vilt skoða og klikkar svo á SUCHEN Kv. Steini.
[ 15. maí 2003 ]
Eins og þið sjáið hér hægra megin er ég byrjaður að selja helstu aukahluti tengda gervihnattamóttökunni eins og Magic Cam 1.04, Magic forritunareiningar, Conax Cam, Basic Card fyrir Conaxinn, FunCard 6, USB- og Smartmouse brennara, Season Interface og það helsta sem til þarf til að hámarka not af þessum græjum okkar.
Það hefur lítil eftirspurn verið eftir auglýsingum frá söluaðilum á síðunni svo þetta er leið mín til að halda síðunni úti. Því allt kostar þetta jú hvort tveggja mikinn tíma og svolitla peninga. Þið getið hringt í mig alla daga vikunnar frá kl. 13 - 23... 365 daga á ári. Við vonum að þið sjáið ykkur hag í þessu og styrkið í leiðinni tilveru skrifa.com, sem hefur hlotið fádæma góðar viðtökur frá ykkur. Kv. Steini Gunn.
[ 15. maí 2003 ]
Þar sem Phills Files síðan hefur verið lögð niður tímabundið hef ég sett inn slóð á Files inná Toecutter's Den.... TOE'S FILES. Þar þarf hins vegar að skrá sig inn í fyrsta skiptið til að fá aðgang.(sjá ef þú hægri klikkar hér)
[ 9. maí 2003 ]
Hér koma upplýsingar um hvar RÚV og Stöð 2 á Astra 28,2°E,
Astra 19,2°E, og Thor 1°W er að finna:
--------------------------------------------
Stöd 2 á Astra 2D á 28.2°E:
Frequency: 10729V, SR:22000, FEC 5/6, SID32001, VPID300, APID301, FTA.
Stöd 2 og RÚV á Astra 1H á 19.2°E:
Stöð 2 - Frequency: 12226H, SR:27500, FEC 3/4, SID31221, VPID300, APID301, FTA.
RUV - Frequency: 12226H SR:27500, FEC 3/4, SID31220, VPID400, APID401, FTA.
RUV á Thor 2 á 0.8W(1°W):(Telenor info channel)
Frequency: 11247V, SR:24500, FEC 7/8, SID108, VPID519, APID668, FTA.
Svo er bara að muna að kjósa rétt .-)
--------------------------------------------
[ 28. apríl 2003 ]
Það eru einhver vandræði á Phills Files í augnablikinu en vonandi finnið þið þá kóda sem ykkur vantar á LAURALS á meðan. (hægri klikka með músinni hér á síðunni)
[ 28. apríl 2003 ]
Var loksins að setja upp leiðbeiningasíðu fyrir forritun með INFINITY USB BRENNARA á FunCard. Þetta eru 'SKREF FYRIR SKREF' leiðbeiningar sem allir geta skilið :-)
[ 27. apríl 2003 ]
Var að setja upp leiðbeiningasíðu fyrir forritun á BASIC CARD fyrir Conaxinn. Þessar leiðbeiningar miðast við notkun forritsins WinExplorer 4.6 sem að sjálfsögðu er einnig kominn á hugbúnaðarsíðuna DOWNLOAD - Kv. Skrifarinn
[ 24. apríl 2003 ] Gleðilegt Gervihnattasumar Skrifa.com óskar ykkur gleðilegs sumars og um leið þakkar ykkur fyrir veturinn og frábærar móttökur og við vonum bara að langt framhald verði á. Kv. Skrifarinn.
[ 11. apríl 2003 ]
Var að henda upp síðu um JOKER CAMið. Leiðbeiningar um hvernig forrita skal camið ásamt samanburðarlista yfir þá móttakara sem þetta er sagt virka á. Svo er nýjasti hugbúnaðurinn fyrir það að sjálfsögðu kominn í DOWNLOAD - Kv. Skrifarinn
[ 11. apríl 2003 ] MAGIC CAM FRÉTTIR
... framhaldssagan ógurlega...
Samkvæmt e-maili sem mér barst í dag frá Satdudez, er óhætt fyrir þá sem eru með OFFICIAL(Raunveruleg) MAGIC CAM að nota Pentacrypt 1.11, þ.e. þá útgáfu sem fengin er af síðunni: http://members1.chello.nl/h.noordijk/magic/Software1.htm. Þetta er sama útgáfa og við erum með hér á skrifa.com Ég bætti aðeins [Final] við nafn hennar í DOWNLOAD til aðgreiningar frá öðrum fyrri Pentum. E-mailið er undirritað af KinkDink, stjórnanda Satdudez.
Hér neðan við getur að líta innihaldið...
----------------------------------------------
Subject: Pentacrypt 1.11 is OK on Official Magic Cams
Hello skrifari
Sorry for any mass panic yesterday but we wanted to be sure that no-body had their cams unnecessarily erased by Penta 1.11
The facts are: -
Official modules with 3D hologram bought from our sponsors "Goldwafers" or "Astratech" will NOT be killed by Penta 1.11 FACT!
This is because these two forum sponsors are supplying 100% genuine Magic Module V1.04 and these modules won't be targeted for death by Ushtar's clone protection routine inside the Penta software.
Tests were conducted with Penta 1.11 yesterday on 6 official MM's and 2 cloned MM's.
All six official modules were unaffected whilst Penta 1.11 killed both the two clones.
There are FAKE MM's on sale that have 3D Holograms and look the part externally but aren't official hardware and these CAMs will and have been killed by Penta 1.11
If you own a genuine MM with 3D hologram and bought it from our sponsors then feel free to load Penta 1.11 back onto your module with confidence.
Members who have MM's without 3D hologram are advised to use Penta 1.09, as this is safe for you guys.
DO NOT UNDER ANY CIRCUMSTANCES EVER PROGRAM PENTA 1.10 INTO ANY MAGIC MODULE, OFFICIAL OR OTHERWISE AS THIS WILL KILL YOUR CAM.
Hopefully this has cleared up any doubt now about what software you should use.
If not just re-read this message again.
P.S. If your cams weren't bought from our sponsors then I can't 100% guarantee if they are official, even if they have 3D hologram. You'll need to find that out yourselves and if unsure just use Penta 1.09 to be safe ok.
Cheers
KinkDink
[Satdudez Admin]
[ 9. apríl 2003 ]
AÐVÖRUN TIL ALLRA MAGIC MODULE EIGENDA!
Enn eru að berast fréttir af þessum MM vandræðum og nú síðast er það staðfest að PentaCrypt 1.11 er einnig að kassera dreamlodernum í Magic. Sjá:
WARNING:-
It has been confirmed that Penta 1.11 is also erasing the dreamloader from all Magic Modules including the NEW 1.04 version.
Do not use your MM today just remove it from the receiver and leave it until further information comes in ok.
Þetta útleggst svona: Aðvörun:-
Það hefir verið staðfest að Penta 1.11 er einnig að eyða út dreamloadernum af öllum Magic Modules, einnig í NÝJU 1.04 útgáfunni.
Notið ekki Magic Camið ykkar í dag, heldur fjarlægið það úr móttakaranum og geymið þar til frekari upplýsingar berast.
Við munum birta upplýsingar eins fljótt og þær berast í hús. Kv. Steini
------------------------------------------------------
[ ELDRI FRÉTTIR - JAN - FEB - MAR 2003 - Lesa... ]
[ ELDRI FRÉTTIR - 2002 - Lesa... ]
|