
FRÉTTIR AF SKRIFA.COM - MARS, APRÍL & MAÍ - 2004
[ 26. maí 2004 - Kl. 13:40 ]
SMÁ SKREPPITÚR
- Jæja..svo bregðast krosstré sem önnur...Þarf að skutlast til Danmerkur á morgun og kem heim 6.júní. Þið náið í mig í gemsanum til kl 13 á morgun en síðan getið þið hringt í mig, frá og með kl. 17 á föstudaginn og þar til ég kem heim í síma:
0045 2733 0940
Þið athugið að mínútan kostar 37,90.
Ég mun að sjálfsögðu fylgjast með á netinu eins og ég get og svo er bara að vona að þessir herrar séu ekki að standa í einhverjum kódaskiptingum rétt á meðan maður bregður sér af bæ.
Pantanir verða afgreiddar eftir sem áður svo vonandi verður þetta ekki svo kvalafullt eftir allt saman. - Kv. Steini
|
[ 26. maí 2004 - Kl. 13:05 ]
Ný skrá á S*Y Italia
- Ný skrá fyrir Sky Italia pakkann komin. Þessi skrá er með 0070(júní lyklinum svokallaða) og er hugsuð fyrir Blátt, en hefur einnig verið reynd á hvítu kortin með góðum árangri. Skráin virkar Öll X-Cömin, MR 1071 og eldra, MM 1.09, ZetaCam/freeXtv 0,77 og 0,78 og þau Aston köm sem á annað borð opna Titanium.- Kv. Steini
|
[ 26. maí 2004 - Kl. 05:15 ]
Lyklaskipti á Sky Italia
- Þeir voru að klára að svissa Sky Italia yfir á nýjan 0C lykil í nótt svo það er slökknað á Titanium skránum í bili. Skilst að þessi Júní lykill sé 'public' svo það ætti ekki að vera langt í nýja skrá. - Kv. Steini
|
[ 23. maí 2004 - Kl. 22:55 ]
Dreamcard skrá
- Jæja þá er komin uppfærsla fyrir gamla Dreamcardið - Njótið félagar - Kv. Steini
|
[ 22. maí 2004 - Kl. 23:15 ]
Titanium Xin1
- Hér er komin skrá fyrir Xin1 þ.e multiskrá ætluð fyrir The Mighty Bosom editorinn. Hentugt fyrir þá sem eiga Conax Cam sem eina camið. Hins vegar þarf aðeins að eiga við camið/kortið í menuinu til að þetta virki vel. Nánari upplýsingar í LEIÐBEININGAR. - Njótið félagar - Kv. Steini
|
[ 22. maí 2004 - Kl. 18:40 ]
CONAX á Basic Card
- Þá er Basic Card skráin fyrir Thor(CONAX) loksins komin! - Njótið félagar - Kv. Steini
|
[ 22. maí 2004 - Kl. 18:25 ]
CONAX á Titanium
- Þá er Titanium skráin fyrir Thor(CONAX) loksins kominí hús... Þolinmæði þrautir vinnur allar:-) Þetta er orðinn býsna góður dagur fyrir okkur gervihnattamenn... - Njótið félagar - Kv. Steini
|
[ 22. maí 2004 - Kl. 00:35 ] - [ UPPFÆRT 22. maí 2004 - Kl. 14:30 ]
SKY Italia gjöriði svo vel
- Þá er Titanium skráin komin í hús... en eins og þið sjáið á logoinu þá er um að ræða skrá fyrir Sky Italia pakkann á Hotbird á 13°.(Fyrir Titanium kort)
Ég er að prófa skrána og skrifa meira um hana á eftir, en mér vitanlega eruð þið fyrstir í gervihnattaheimum til að fá þessa skrá... svo þið verðið að vera rólegir í sambandi við Conaxinn enn um sinn:-) Pirates of the Carrabian með Johhny Depp er á Prima Fila núna...flottur kallinn.. OK nóg um það... Skráin er hugsuð fyrir TitaniumLoader. Sjá Rásalista SKY Italia
FYLGIST MEÐ LISTANUM EFTIR ÞVÍ SEM UPPLÝSINGAR BÆTAST VIÐ:
Skráin virkar í:
MR 1.050, 1,052, 1.055, 1.060, 1.070, 1.071
FreeXtv - ZetaCam Gult 0.77 - 0.78
Blue Ice V 0.80
X-Cam 1,03, 1.04, 1.05
Dragon Cam 2.01, 2.02, 2.03
Magic Cam 1.09, 1.11
Aston Seca 1.0, 1.01, 1.02, 1.3
Humax 540 TOH 3.2 Hotfix 1.4
Sammy 9500, EMU 4.3, embedded
Hún virkar EKKI í:
Aston Seca (1.5)* prófað í 3 cömum , en sumir fá þetta þó til að virka!
MRR (Revolution nýjasta camið)
MR 1.080, MR 1.081,
FreeXtv - ZetaCam Gult 0.79
SKY Italia
|
[ 21. maí 2004 - Kl. 22:35 ]
Smá von...
- Jæja þá gæti farið að styttast í titanium kódana ef nýjust fréttirnar reynast réttar, en samkvæmt þeim er M.O.D að leggja síðustu hönd á kóda sem verið er að testa þegar þessar línur eru skrifaðar. Svo er bara að vona að þeir virki og verði settir á netið... en allavega er unnið á fullu að þessu í augnablikinu. - Kv. Steini
|
[ 21. maí 2004 - Kl. 04:10 ]
Mér varð laglega á...
- Svo bregðast krosstré sem önnur... Fékk ábendingu á spjallinu að þessi skrá sem ég setti upp í gær væri ekki að virka, en ég brasaðist í gær við að seja saman seca2 skrá sem virkaði á Öll Aston cömin og eftir miklar samsuður úr misjöfnum skrám fékk ég þetta til að virka og var ekkert smá ánægður með sjálfan mig:-). Ég var komin með flóð af fælum og flestir heita þeir sömu nöfnum svo eftir að ég var búinn að fá þetta til að virka, tók ég mig til og endurskírði skrárnar og henti síðan þeim skránum sem gengu af. Þetta tókst nú ekki betur en svo að ég hef endusrskírt rangt eeprom og sett upp á netið...en fleygt þeirri breyttu... Og það sem meira er að ég finn ekki útúr þessu aftur. Kannski gengur mér betur óþreyttum á morgun...er að verða rangeygður af þessu bulli.... En alla vega...þessi drusla sem ég setti upp í gær er meira en ÓNÝT...ekkert flóknara en það. - Kv. Steini
|
[ 20. maí 2004 - Kl. 14:05 ]
Seca2 skrá fyrir öll Aston Cöm
- Hér er Seca II skrá sem virkar á allar gerðir Aston Seca cama.Smellið á myndina til að sækja skrána. Virkar einnig fyrir X-Camið. Þetta opnar Taquilla 1 - 10 á Astra 1 á 19°. Transponderarnir eru, fyrir þá sem enn hafi ekki notað þetta:
10.788V, SR: 22,000 & 11.097V, SR: 22,000 - Kv. Steini Ath! Þessi skrá virkar ekki í FreeXtv eða Conax Cam.
|
[ 20. maí 2004 - Kl. 10:50 ]
Enn engar fréttir af Titanium
- Enn eru engar fréttir að hafa af skrám fyrir Titanium kortið. Það virðist sem M-II kortamennirnir hafi ekki gert kódana opinbera ennþá. Vonandi koma þeir fram sem allra fyrst, en það virðist komin svo mikil samkeppni á milli þessara kortaframleiðenda sem svo virðist koma fram með þessum hætti. Vonandi rætist úr þessu. - Kv. Steini
|
[ 19. maí 2004 - Kl. 10:45 ]
Ný skrá fyrir VR3 Pentacard á Conaxinn
- Hér er kominn ný skrá fyrir Pentacardið. Skráin inniheldur bæði stýriskrána og binfælinn. - Kv. Steini
|
[ 18. maí 2004 - Kl. 14:40 ]
Ný skrá fyrir M-II á Conaxinn
- Hér er kominn skrá fyrir M-II en Conaxinn skipti út lyklum í dag eins og menn hafa eflaust tekið eftir. - Kv. Steini
|
[ 18. maí 2004 - Kl. 04:10 ]
AD-Teknik Phoenix/Smartmouse USB brennarinn
- Hér er kominn brennari sem svínvirkar fyrir Titanium kortin, á tölvur sem eingöngu eru með USB tengi! Brennt er á kortin með Titanium Loader(sérstakri version) Sjá leiðbeiningasíðu sem ég var að setja upp fyrir þennan brennara sem væntanlegur er á næstu dögum. Brennarinn er hraðvirkur og fær úrvalsdóma hjá 'Duwgati' sem er helsti sérfræðingurinn í brennurum og hugbúnaði þeirra. Ég mun á næstu dögum setja upp sérstaka síðu fyrir brennarann og möguleika hans, en meðal þeirra er forritun á Dragon Loader Cardinu.- Kv. Steini
|
[ 17. maí 2004 - Kl. 02:45 ]
TMB m/Seca2 D+ Taquilla 1-10 líka
- Hér er komin TMBskrá(The Mighty Bosom) fyrir titanium kort, en þetta er skrá sem gerir mönnum kleyft að nota Conaxcamið sem multicam. Vanti þig editorinn sjálfan þá er hann í gömlu skránni.. sjá frétt dagsetta [ 21. apríl 2004 - Kl. 11:50] Athugið að henda út skránum úr þeirri.. því þessar bera sama nafn.! - Kv. Steini
|
[ 17. maí 2004 - Kl. 01:50 ]
UM Smartmouse USB frá Infinity!
- Leiðrétting! Komið hefur í ljós eftir miklar prófanir og staðfestingu frá framleiðanda, að Smartmouse brennarinn frá USB, sem við kynntum hér til sögunnar fyrir stuttu síðan, virkar ekki fyrir Titanium kortin. Þessi brennari, sem eingöngu er tengdur með 1 USb kapli, og er því tilvalinn fyrir þá sem ekki hafa aðgang að 9pinna RS-232 Comporti á tölvunni sinni, virkar fínt á aðrar gerðir korta þ.e Basic Card, M-II og Pentacardið. Hinsvegar prófaði ég að brenna með honum á nýtt kort(Í virgin state') sem svínvirkaði og áttaði ég mig því ekki á vandamálinu strax.
Það sem kemur í veg fyrir að Titanium kortið gangi með þessum brennara er að svartími/biðtími kortsins(sem er aðalmálið varðandi því að geta eytt útaf kortinu( trapping card/ sending trapcode ) passar ekki við hraða USB portsins, sem er mun hærri en serialportsins. Kortið er byggt þannig að það þarf ákveðna skipun innan tiltekins tíma frá því að erase/reset er valið. Vegna þessa er ógjörningur að trappa kortið aftur í 'Virgin State' sem er forsenda þess að forrita kortið.
Reyndar var Titaniumkortinu ekki einu sinni ætlað að virka á Pc-Serial Comporti, það kom bara í ljós að 'svartími' flestra comporta er svipaður kjörtíma kortanna. Þetta skírir til dæmis þá staðreynd að á einstaka tölvum gengur mönnum illa að trappa kortin og má það gjarna rekja til smávægilegra frávika á comportum viðeigandi tölvu. En alla vega þá er þetta á hreinu... betra seint en aldrei... - Kv. Steini
|
[ 15. maí 2004 - Kl. 14:10 ]
Meira goodies!
- Var að bæta inn slatta af forritum inn í DOWNLOAD (þ.e Forritin) Þar á meðal forritinu SEP sem er forrit til að editera MR skrárnar og eins til að converta Binskrá í Updskrá...og eins til splitta þessum skrám á Fun og fleira. Þarna er hægt að tvísmella á bæði providera og ID og edita þetta.
Þá eru einnig komin inn forrit fyrir Titanium og eins fyrir Loader einingarnar. - Kv. Steini
|
[ 14. maí 2004 - Kl. 22:55]
Seca2 Matrix Reloaded skrá MR. 1.081
- Jæja þá er komin OK skrá fyrir Matrix Reloaded með Taquilla 1-10 innbyggt.. þ.e MR 1.081. Það þarf að framkvæma smáaðgerð til að gera þetta virkt. Þið þurfið að fara inn í CI Menu... Smella á Set Default Keys... smella síðan á OK og velja síðan CAS Keys... og breyta (undir Seca3) ID 0064 í 0000 og síðan er smellt á SAVE og OK.
Hafir þú breytt MRnum með Binskránn(með Cas Interface2) þá þarftu ekki að' fara í Set Default key... heldur breytir bara ID 0064 í ID 0000. ATH! Þegar þú ætlar að breyta Idinu og velur það þá koma þrjú strik - - - þú skrifar inn 000..smellir á ok... skrifar aftur inn 000 og á Ok og í þriðja skiptið 000 og smellir á Ok og þá kemur upp SAVE sem þú samþykkir.
Hér eru skrárnar:
Bin skráin
Upd skráin
Fun4 skráin
Fun5 skráin
Fun6 skráin
Kv. Steini
|
[ 13. maí 2004 - Kl. 05:05]
EKKI uppfæra í Rev 2.00!
- Það komu skrár fyrir MR í kvöld sem leið, og kallast þær Rev 2.00. Þessar skrár eru með lyklana fyrir Digital+ innbyggðar en hins vegar er galli á gjöf njarðar, því kömin frjósa á þessu sí og æ og einnig er kortastuðningurinn horfinn eftir að kamið er uppfært svo það er ekki hægt að spóla til baka með Funcards heldur þarf til þess Cas Interface2. Því ráðlegg ég ykkur að halda ykkur við 1.080 og nota heldur Titanium heldur en að uppfæra í Rev 2.00. - Ég vildi bara láta ykkur vita þannig að þið rykjuð ekki í þetta ef þið rækjust á skrána einhversstaðar á netinu.
Ég prófaði bæði .bin skrána með Cas2, UPD skrána með Cas2, UPD skrána með MR loader card og hugbúnaðinum frá Clanzers og síðan hefðbundna uppfærslu með Fun6 og niðurstaðan var alltaf sú sama. Tómt tjón...
- Þeir hljóta að laga þetta til ég trúi ekki öðru, en sennilega er þetta skrifta fyrir Matrix Revoloution camið sem er á leiðinni á markaðinn. Það er varla að maður kunni nöfnin orðið á öllum þessum kömum lengur:-) Kv. Steini
|
[ 12. maí 2004 - Kl. 16:50]
D+ skipti aftur yfir í OE lykilinn
- Enn eru þeir Digital+ menn að sprikla og núna hafa þeir skipt yfir í OE lykilinn þ.e.:
- ID: 0067 - KEY OE: ????
Taquilla 1-10 virkar eftir sem áður en þar eru þeir enn með þetta á gamla IDinu, svo það er svo sem skárra en ekkert. Hins vegar opnar MRinn þetta ekki kortlaus núna ekki frekar en X-camið. Þannig að... TITANIUM var það heillin - Kv. Steini
|
[ 12. maí 2004 - Kl. 02:20]
Forritun Matrix með Cas Interface2
- Var að setja inn 'Skref fyrir skref' leiðbeiningasíðu um hvernig Matrix Reloaded er forritað á einfaldan og fljótlegan máta með Cas Interface2.
Þessi síða er undir linknum LEIÐBEININGAR hérna vinstra megin, en þar eru að finna allar hjálparsíðurnar.
Ég get því miður ekki svarað í símann fyrr en eftir klukkan 14:30 í dag(miðvikudag) vegna heimsóknar til lækninsins:-) - Kv. Steini
|
[ 11. maí 2004 - Kl. 04:20]
Allar Seca2 skrárnar!

- Matrix Reloaded skrá = .Bin skrá fyrir Cas Interface2
- X-Cam 1.05 = Fer í Block 2 með X-Cam Loader
- Titanium Hvítt = Fyrir TitaniumLoader
- Titanium Blátt = Fyrir Titanium Progger 1.10+
Mig vantar ennþá virka skrá fyrir Xin1 á Conax cam(The mighty bosom)... hef ekki fengið hana til að virka á seca2 ennþá. - Kv.Steini
|
[ 9. maí 2004 - Kl. 18:00]
Matrix Seca2 skráin!
- Hér er komin binskrá með S2 inni fyrir Matrixinn. Fljótlegt fyrir þá sem eru með Cas Interface2. Með þessari skrá opnar Matrixinn allan Digital+ pakkann- Hér síðan skrá fyrir Fun5, en í hana þarf að handsetja inn lyklana fyrir provider 0064. Matrix skráin opnar sem fyrr segir ALLAN DIGITAL+ pakkann þ.e.:
Taquilla 1-10
Cinemania
Cinemania Cable
Cinemania Rojo
Cinemania Azul
TV Canaria
C+ Cine 1-3
Callé 13
Paramount Comedy
Cosmopolitan
Disney Channel+1
Playhouse Disney
FOX
Cartoon Network
People & Art
Viajar
Þessar stöðvar hér að ofan eru með ALLAR ENSKT TAL. Síðan eru náttúrulega stöðvar eins og Real Madrid TV, Barcqa Tv, Eurosport og fleiri sem sýna bolta og aðrar íþróttir og eru ekki með möguleika á ensku, ásamt fjölda annarra. - Njótið félagar - Kv. Steini
|
[ 8. maí 2004 - Kl. 23:30]
MAMIMUM 0,30dB
- Vorum að taka í sölu MAXIMUM 0,3dB Universal lnb nemana. Miðað við fyrri nema frá Maximum, ætti þessi ódýri nemi að vera kærkomin viðbót í flóruna.- Kv. Steini
|
[ 6. maí 2004 - Kl. 20:30]
SECA II Taquilla 1-10 skrá
- Þá er komin skrá fyrir Seca 2 aftur og er þessi skrá fyrir Titanium með Oz 1.06 og gengur í X-Cam 1.04, Matrix Reloaded 1.078 en EKKI á 1.080 og svo rúsínan í pylsuendanum á ÖLL ASTON SECA CÖMIN(ég prófaði þetta á 4 Aston 1.5 Cöm þ.e rev 1.01, 1.02 og tvö ómerkt.) - Hef ekki fleirar gerðir cama til að prófa þetta á í augnablikinu.
Skráin er sögð virka á Matrix Reloaded uppí version MR 1.055, en ég prófaði hana á 1.078 og þar virkar hún semsagt líka. Einnig á hún að virka á Magic Module. - Ath! Virkar ekki í FreeXtv eða Conax köm. - Kv. Steini
|
[ 6. maí 2004 - Kl. 12:30]
SMARTMOUSE USB
- Var að setja upp Leiðbeinigasíðu um uppsetningu á þessum Smartmouse USB brenanra frá Infinity. Þessi brennari er EINGÖNGU USB tengdur og virkar í Phoenix og Smartmouse ham þ.e 3,58, 3,68, & 6,0Mhz í hvorttveggja Phoenix og Smartmouse. Hann virkar á allr gerðir þessara vinsælust korta sem menn hafa verið að nota síðustu mánuðina, en er ekki nothæfur á pickort eins og Gullkort, Funkort og slík. Þessi brennari er góð lausn fyrir þá fjölmörgu sem eru að nota nýlega laptoppa við brennsluna, en fæstir þeirra eru með 9pinna serial port. - Kv. Steini
|
[ 6. maí 2004 - Kl. 11:35]
Hvenær koma þær?
- Enn bíða menn frétta af nýjum skrám sem sagðar áttu að koma um miðja vikuna, en ekkert bólar enn á. Mið vika er kannski á öðrum tíma þarna í útlandinu:-) Maður dokar bara...og dokar... og dokar... - Kv. Steini
|
[ 3. maí 2004 - Kl. 22:15]
Kiosk 12-22:-(
- Þá hefur verið hætt útsendingum á Kiosk 12 -22, eða frá og með deginum í dag. Enn er svo sem engar fréttir að hafa af þessari aðgerð en líklegast er þó að þeir séu einfaldlega að fækka rásum. - Kv. Steini
|
[ 3. maí 2004 - Kl. 22:15]
Ný Horror Kvikmyndarás FTA
- Rásin 'The Horror Channel' hóf OPNAR útsendingar(FTA) í dag 3.maí og sýnir gamlar og góðar hryllingsmyndir fyrir þá sem gaman hafa af slíku. Þessi rás er á Astra2 á 28° á:
FREQ:11224 H
SR: 27500
FEC: 2/3
- Kv. Steini
|
[ 2. maí 2004 - Kl. 17:35]
Nýjar rásir að opnast?
- Samkvæmt pósti frá Toecutter má búast við að eitthvað nýtt sé að koma fyrir X-Camið og í framhaldinu á Titanium(eða öfugt) og talar hann um miðja næstu viku. Hann minnist ekkert á rásirnar/hnöttinn eða cryptuna, en hann er einn af þeim sem er í innsta hring svo nú er bara að hlakka til og vona það besta...eitthvað sem við erum hvort eð er vanir:-) - Kv. Steini
Samkvæmt því sem verið er að spjalla eru mestar líkur á því að þetta sé SecaII sem sagt er orðið opið á X-Cami í Þýskalandi. [ Breytt 3. maí 2004 - Kl. 05:00]
|
[ 29. apríl 2004 - Kl. 23:45]
Gamla DreamCardið
- Hér er komin skrá fyrir gamla DreamCardið. Þetta er uppfærsla sem fer fram í DOS. - Kv. Steini
|
[ 28. apríl 2004 - Kl. 00:15]
M-II editor til að leika sér með
- Hér er M2 Editor til að leika sér með. Þetta er skemmtilegt tól fyrir þá sem vilja fikta í skránum sjálfir og jafnvel smíða sér nýja skrá næst þegar lyklaskipti verða. Smelltu á myndina til að sækja skrána. - Kv. Steini
|
[ 27. apríl 2004 - Kl. 19:20]
Ný Conax skrá fyrir Pentuna VR3
Jæja - Hér er VR3 skráin komin. Smellið á myndina til að sækja skrána. Þetta er skrá án WinExplorer en með .ini fælnum svo þið notið bara síðasta WinExplorerinn og peistið homnum inní möppuna sem þið notið fyrir þetta. Skráin er prófuð og virkar! - Kv. Steini
|
[ 27. apríl 2004 - Kl. 16:35]
Skrá fyrir Basic Cardið
Smellið á myndina til að sækja skrána.ATH! Notið BCEditorinn, hann er lang einfaldastur! - Kv. Steini
|
[ 27. apríl 2004 - Kl. 16:20]
Ný Conax skrá fyrir M-II kortin
Jæja - Snöggir voru þeir M2 bændur að virkja kortin. Vonum að styttist í restina. Smellið á myndina til að sækja skrána. Þetta er complett skrá með Kiosk og alles.. Skráin er prófuð og virkar einnig í Matrix Reloaded - Kv. Steini
|
[ 27. apríl 2004 - Kl. 15:40]
Conax skrá fyrir Titanium
Jæja - Hér er komin skrá fyrir Conaxinn á Titanium. Hef prófað hana á Oz 1.03 og hún svínvirkar í Conax og Matrix RELOADED. Þetta er bara orðið þannig að maður hefur ekkert fyrir því að tilkynna hér á síðunni að Conaxinn hafi dottið út... þeir eru svo fljótir að smíða nýja kóda orðið:-)
ATH! HENDIÐ ÖLLUM GÖMLUM CONAX SKRÁM áður en þið downloadið þessari. Það kemur í veg fyrir að proggerarnir leiti að síðustu skrá sem þið brennduð og svo þegar ekkert opnast...þá sparar það mér margra klukkustunda vinnu í símanum :-)- Kv. Steini
|
[ 25. apríl 2004 - Kl. 14:40]
Conax skrá fyrir gamla Dreamcardið
- Hér er komin skrá fyrir gamla Dreamcardið. - Kv. Steini
|
[ 25. apríl 2004 - Kl. 00:40]
MR Loader Card forritunareiningin
- Var að enda við að skella upp LEIÐBEININGASÍÐU UM MR Loader Card forritunareinginuna sem ég er einnig að hefja sölu á, og er ódýr lausn og einföld í notkun.
Þetta er eining sem lítur nánast eins út og gamli Magic Cam programmerinn og er tengd við PC tölcu í gegnum serialkapal og henni rennt í camið í móttakaranum.
Þið komist einnig í síðuna í gegnum linkinn LEIÐBEININGAR hérna vinstra megin.
MR LOADER CARD kostar kr. 8.900.. Ég hef ekki haft tíma ennþá til að koma þessu inná versla.com, en geri það á morgun eða hinn. - Kv. Steini
|
[ 23. apríl 2004 - Kl. 23:25]
MutZNutZ forritunareiningin
- Var að enda við að skella upp LEIÐBEININGASÍÐU UM MUTZNUTZ forritunareinginuna sem ég er að hefja sölu á, og er ótrúleg græja.
Þetta er eining sem hægt er að forrita(hún er með innbyggt 2Mb minni) og síðan er bara labbað með hana í Matrix Reloaded camið og það forritað á innan við 1. mínútu. Þetta er ekkert smá þægilegt þar sem langt er frá tölvu í móttakara, og þess vegna hægt að skreppa á milli húsa með hugbúnaðinn í einingunni og forrita hjá náunganum...
Einnig er hægt að nota hefðbundnu aðferðina þ.e serialkapall frá PC tölvunni í eininguna í caminu. og svo 3 kosturinn en þessi forritunar eining virkar einnig sem Season Interface.
Þið komist einnig í síðuna í gegnum linkinn LEIÐBEININGAR hérna vinstra megin.
MutzNutz einingin(með aflborðinu) kostar kr. 13.900.- en eins og með leikföngin hjá konunum þá eru 'Batteries Not Included':-) - Kv. Steini
|
[ 22. apríl 2004 - Kl. 10:25]
Gleðilegt Sumar!
Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn! Þessi vetur, ef vetur skyldi kalla hefur liðið frekar hratt hjá mér svo ekki sé meira sagt, og lítill tími gefist til að horfa á allar þessar fínu stöðvar sem opnar hafa verið:-) En það er svo sem fínt og þýðir bara það að mikið hefur verið um að vera í gervihnattaheimum og það er jú það sem við viljum. Svo er bara að vona að sumarið verði ekki síðra.
Ég vil þakka þeim sérstaklega sem hafa verslað hér á skrifa.com og þar með styrkt tilveru þessarar síðu. Ég mun áfram kappkosta að veita ykkur sem besta þjónustu, því ánægður viðskiptavinur er jú besta auglýsingin. Þá hefur verið sérstaklega ánægjulegt að kynnast ykkur. Takk fyrir mig. - Kv. Steini
|
[ 21. apríl 2004 - Kl. 21:25]
Skrá fyrir Basic Cardið
Smellið á myndina til að sækja skrána. Þessi skrá inniheldur nýja Basic Card skrá sem nú opnar einnig Kiosk stöðvarnar. ATH! Notið BCEditorinn, hann er lang einfaldastur! - Kv. Steini
|
[ 21. apríl 2004 - Kl. 21:05]
Predator 1.6 fyrir Dragon Camið
Jæja - Hér er Predator 1.6 komin. Smellið á myndina til að sækja skrána. Emulation fyrir Irdeto, Nagra, Viacces og Conax (virk 21/4/2004!), með key editor (athugið "Debug" valið í menuinu), einnig innbyggður conax key editor í þessari uppfærslu!!
Seca2 virkar hins vegar ekki í þessari version en ....FreeXtv virkar hins vegar! - Kv. Steini
|
[ 21. apríl 2004 - Kl. 13:40]
LEIÐRÉTT Conax skrá fyrir Titanium kortin
Jæja - Hér er RÉTTA Titaniumskráin komin. Smellið á myndina til að sækja skrána. Hin skráin var erfiðari í umgengni og gekk ekki sem skyldi fyrir alla
ATH! NOTIÐ TITANIUMLOADER.EXE og OZ 1.03 á kortið! [ Breytt 23. apríl kl. 03:15 ] - Kv. Steini
|
[ 21. apríl 2004 - Kl. 12:10]
Brenndu á kortin sjálfur
Fyrir ykkur sem eruð orðnir leiðir á því að geta ekki brennt skrárnar sjálfir... minni ég á Infinity USB/PHOENIX brennarana sem eru nauða einfaldir í notkun.. svínvirka á öll kort... íslenska sem tungumál í hugbúnaði... geisladiskur og manuall fylgir. Enginn spennubreytir heldur tekur hann strauminn í gegnum USB portið. Ath! Fyrir Titanium, M-II, Pentacard og Basic, þ.e Phenix mode þarf einnig að tengja brennarann með 9 pinna(RS-232) Seríal kapli í Com port. - Toppgræja. Skref fyrir skref leiðbeiningarsíðu hér inná skrifa.com. - Verð kr. 14.800.-
|
[ 21. apríl 2004 - Kl. 11:50]
5-in1 á Titanium + Editor
Smellið á myndina til að sækja skrána. Þessi skrá inniheldur Eeprom(5in1) sem virkar á allavega TPS MULTIVISION, Síríus pakkann og á Conaxinn í gegnum Conax Cam. Þessi skrá er brennd með sérstökum Editor/Progger og þó þetta sé ekki mest Auto dæmið af þessu öllu saman er í það minnsta gaman að því að skoða þetta með tilliti til þess að smíða skránar sjálfur.
Skráin er prófuð og virkar á Seca2(Cinemania stöðvarnar, DCine Studio og þessar örfáu sem eftir eru á 19°e), Viaccess(Viasat 5°e), TPS(Multivision 13°e) og Conax(Canal Digital 1°w) og Betacrypt(Orf 19°) HÉR ER SVO LEIÐBEININGASÍÐA UM ÞETTA en eins er hægt að komast í hana í gegnum linkinn LEIÐBEININGAR hér vinstra megin. Góða skemmtun - Kv. Steini
|
[ 21. apríl 2004 - Kl. 01:40]
Ný Conax skrá fyrir Pentuna VR3
Jæja - Hér er VR3 skráin komin. Smellið á myndina til að sækja skrána. Þetta er skrá án WinExplorer en með .ini fælnum svo þið notið bara síðasta WinExplorerinn og peistið homnum inní möppuna sem þið notið fyrir þetta. Skráin er prófuð og virkar - Kv. Steini
|
[ 20. apríl 2004 - Kl. 20:20]
Ný Conax skrá fyrir M-II kortin
Jæja - Snöggir voru þeir M2 bændur að virkja kortin. Vonum að styttist í restina. Smellið á myndina til að sækja skrána. Þetta er complett skrá með Kiosk og alles.. Skráin er prófuð og virkar - Kv. Steini
|
[ 20. apríl 2004 - Kl. 13:20]
Lyklaskipti á Conaxinum 'key set 21'
Jæja Þá eru okkar menn hjá Conaxinum farnir að sprikla aftur, en í morgun skiptu þeir yfir í lykil 21. Við skulum vona að hann verði gerður 'public' fljótlega, og ég mun reyna að flytja fréttirnar eftir því sem þær berast. - Kv. Steini
|
[ 18. apríl 2004 - Kl. 23:20]
Enn rólegt á Seca2 vísgstöðvunum
En hafa ekki komið nýjar Seca2 skrár, en eftir að nýja s2 9x hash taflan kom á Dragon Cam töldu menn að það yrði stutt að bíða eftir skránum á Titaniumkortin. Við verðum bara að vona hakkararnir hafi verið í helgarfríi:-)
Annars eru þær kvikmyndarásir sem eru opnar í Seca2 úr D+ pakkanum á 19°(Astra1)þessar:
CINEMANIA
CINEMAINIA ROJO
CINEMANIA CABL
CINEMANIA AZUL
DCINE STUDIO
[Breytt 19. apríl, Kl. 11:30] - Kv. Steini
|
[ 15. apríl 2004 - Kl. 00:10]
Basic Card skrá m/Kiosk
Smellið á myndina til að sækja skrána. Þessi skrá inniheldur nýja og endurbætta Basic Card skrá sem nú opnar einnig Kiosk stöðvarnar. ATH! Notið BCEditorinn hann er lang einfaldastur! - Kv. Steini
|
[ 14. apríl 2004 - Kl. 17:00]
5-in1 á Titanium + Editor
Smellið á myndina til að sækja skrána. Þessi skrá inniheldur Eeprom(5in1) sem virkar á allavega TPS MULTIVISION, Síríus pakkann og á Conaxinn í gegnum Conax Cam. Þessi skrá er brennd með sérstökum Editor/Progger og þó þetta sé ekki mest Auto dæmið af þessu öllu saman er í það minnsta gaman að því að skoða þetta með tilliti til þess að smíða skránar sjálfur.
Ég prófaði þetta í Conax Caminu og fékk þetta til að virka á Seca2(Cinemania Cabl, DCine Studio og þessar örfáu sem eftir eru á 19°e), Viaccess(Viasat 5°e), TPS(Multivision 13°e) og Conax(Canal Digital 1°w) og Betacrypt(Orf 19°) en er ekki búinn að prófa Nagra. Hins vegar styður þetta semsagt Con*x,Viac**ss, S*ca 1/2,Nag*a,Irde*o og Bet*crypt. HÉR ER SVO LEIÐBEININGASÍÐA UM ÞETTA en eins er hægt að komast í hana í gegnum linkinn LEIÐBEININGAR hér vinstra megin. Góða skemmtun - Kv. Steini
|
[ 14. apríl 2004 - Kl. 05:45]
[ 14. apríl 2004 - Kl. 04:30]
Titaniumkortin kominn aftur
Orginal Titaniumkortin(Þessu bláu með holograminu) komu aftur í dag og fara pantanirnar í póst í fyrramálið(á eftir).
Mér skilst að ég sé sá eini í Evrópu sem á þessi kort í dag. Enda hafa mér borist pantanir frá Bretlandi, Þýzkalandi, Danmörku, Svíþjóð, Hollandi og Möltu síðustu dagana svo einhver er vöntunin þarna í útlandinu:-) Þessi sending sem kom loksins í hús í dag er mánaðargömul pöntun(frá 15.mars) og var greitt undir hraðsendingu(UPS) á hana svo maður þakkar guði fyrir að hafa ekki tekið hana með venjulegum pósti:-) Pakkinn var m.a. búinn að skreppa til Írlands og dvelja þar í góðu yfirlæti... en semsagt slapp fyrir horn. - Kv. Steini
|
[ 14. apríl 2004 - Kl. 02:30]
Endurbætt M-II skrá m/allar Kisok rásirnar virkar
Smellið á myndina til að sækja skrána. Þessi skrá er lagfærð þannig að allar kioskrásirnar virka, en það vantaði einar 3 í þá gömlu.
Athugið! Best er að setja M-II forritið í möppu beint á C:\ rótina.. þ.e ekki vera með mjög langa addressu á þessu eins og: C:\Documents and Settings\steini gunn\desktop\satstuff\MII\ og svo framvegis, það getur í einstaka tilfellum orsakað villu í brennslunni. Njótið félagar - Kv. Steini
|
[ 11. apríl 2004 - Kl. 05:10]
Seca2 Titanium á FreeXtv cami
Seca skrárnar frá 3DOGS fyrir Titanium virka í FreeXtv caminu líka þ.e þær opana Digital + pakkann á Astra að undanskildum Taquilla 1-11.
Stöðvarnar sem opnast og eru með vali um orginal language(Ensku)eru fjölmargar og fínar myndir sýndar þarna ásamt PARAMOUNT sem sýnir vinsælar seríur og gamanþætti. Rásirnar eru m.a.:
| Kvikmyndarásir: |
|
Sjónvarpsrásir: |
|
Sport: |
CANAL+
CANAL+ ..30
C+ CINE 1
C+ CINE 2
C+ CINE 3
CINEMANIA
CINEMAINIA ROJO
CINEMANIA CABL
CINEMANIA AZUL
D CINE STUDIO
CALLE 13
PARAMOUNT
SATMODE PPV 1
SATMODE PPV 2
SATMODE TEASER
SATMEDE SUBS
FOX
TAQUILLA X (PORN)
TAQUILLA X2 (PORN)
TAQUILLA XX (PORN)
TAQUILLA XY (GAY PORN) |
|
40 LATINA
METEO
NAT GEOGRAPHIC
C+ DEPORTE 1
C+ DEPORTE 2
C+ DEPORTE 3
FOX NEWS
DISNEY CHANNEL
40TV
DISCOVERY
CARTOON NETWORK
FOX KIDS
PLAY HOUSE
TOON DISNEY
CANAL E.C.I
CNN+
AXN
D CINE ESPV
CANAL COCINA
FDF
I>TELE
GALAVISION
CLASSICO
24 HORAS
TELENOVA
|
|
GOLF+
SPORTMANIA
REAL MADRID TV
EUROSPORT
EUROSPORT NEWS
BARCA TV
|
Þetta ættu að vera gleðifréttir fyrir þá sem hafa verið með FreeXtv og ekki haft fram að þessu möguleika á Seca2. Skrárnar sem ég prófaði, eru: Skrárnar í möppunni FILE 2 og eins SPAIN skráin í möppunni FILE 1. Þessar skrár virka á allar gerðir Titaniumkorta - Kv. Steini
|
[ 10. apríl 2004 - Kl. 01:10]
Who let the dogs out Seca2 titanium skrárnar!
Hér eru þessar skrár sem menn hafa verið að diskútera síðustu dagana, en þetta eru 2 gerðir skráa fyrir allar gerðir Titaniumkorta þ.e Hvítra , Bláraa, Bleikra og hvaða litir eru á þeim öllum. Þessar skrár eru Multiskrár og geta menn valið um hvaða gerð menn nota. Ég þýddi ReadMeFirst.html(sem er inní winzip fælnum) sem útskýrir hvað hver skrá opnar. Ég hef prófað eina þeirra á hvítt kort á Aston Seca Cam og hún virkar fínt á Digital+ pakkann á Astra1, en talsverða stund tók að fá hana til að virkjast í fyrstunni enda Aston kömin afleit fyrir Titaniumkortin.
Athugið! Það þarf að nota forritið Titanium Card Loader þegar þessar skrár eru brenndar, en Titanium Card Proggerinn venjulegi ræður ekki við hex skrárnar í þessum multiskrám. Ég er búinn að setja upp leiðbeinigasíðu um forritun með Titanium Card Loader sem einnig er hægt að komast í í gegnum linkinn LEIÐBEININGAR hér vinstra megin í linkunum. - Kv. Steini
|
[ 9. apríl 2004 - Kl. 00:45]
Ný Matrix uppfærsla m/SECA2!
Þá er komin uppfærsla á Matrixinn sem inniheldur Seca2. Þ.e Digital+ pakkan á Astra, einnig Polsat pakkann á Hotbird. Eitthvað er fleira um nýungar þannig að núna er til dæmis er hægt að hafa Titanium kortið með Conaxinum í caminu þegar þvælt er á hina hnettina og allt virkar. Segi og skrifa Matrix...TÆR SNILLD! Góður dagur í gervihnattaheimum:-) - Kv. Steini
|
[ 8. apríl 2004 - Kl. 11:55]
LOKSINS TITANIUM CONAX SKRÁ
Smellið á myndina til að sækja skrána. Hún er prófuð og virkar þar með taldar Kiosk stöðvarnar. Njótið félagar. - Kv. Steini
|
[ 8. apríl 2004 - Kl. 11:50]
Ný Basic skrá komin, en án Kiosk:-(
Smellið á myndina til að sækja skrána. Hún er prófuð og virkar en án PPV. Svo er bara að vona að Titanium fari að haska sér....enda einir eftir. - Kv. Steini
|
[ 8. apríl 2004 - Kl. 03:40]
Nýju rásirnar á Thor
Að gefnu tilefni er hér niðurröðun og aðrar upplýsingar um nýju rásirnar á Thor 1° w, en eins og ég skrifaði um fyrir nokkru þá mun Canal Digital hefja sýningar á þessum rásum þann 1.maí næstkomandi og verða þær ruglaðar með Conax á tíðninni 11,278V
"Canal+ Gul" kemur til með að heita "Canal+ Film 1", "CANAL+ Bla" mun heita "CANAL+ Film 2" "CANAL+ Zap" mun síðan heita "CANAL+ Sport". Þá bætist við ný rás sem heitir "C MORE FILM" og mun hún sýna vinsælar bíómyndir gerðar á árunum frá 1970 - 1990.
Uppröðunin verður sem hér segir:
Canal +:
mun sýna 25 nýjar kvikmyndir á mánuði, "UK Premier League", "Italian Seria A" fótbolta" og "NHL"
CANAL+ FILM 1:
Mun sýna, kvikmyndir, heimildarmyndir og seríur.
CANAL+ FILM 2:
Mun einnig sýna kvikmyndir en hér verður val um 16/9, widescreen og hljóðið í Dolby Digital 5.1.
C MORE FILM:
Ný rás sem keyrir á frægum kvikmyndum framleiddum 1970 - 1990
CANAL+ SPORT:
Sportrás sem sýnir, Scandinavískt sport, UK Premier League, Ítalska boltann, NHL, mótorsport, box, golf og fleira og fl.
Það er svo bara að vona að nægt framboð verði af kortum og kódum:-) - Kv. Steini
|
[ 8. apríl 2004 - Kl. 01:10]
Búið að birta 'key set 20' fyrir Conaxinn!
Þeir snillingarnir sem framleiða M-II kortið gerðu 'Key Set 20' public fyrir nokkrum mínútum(sjá póst á spjallinu - "season lyklar" undir Conax) svona sem páskagjöfina í ár og því ætti að styttast í skrár fyrir Titanium og Basic. - Kv. Steini
|
[ 6. apríl 2004 - Kl. 23:10]
Ný M-II skrá komin og inniheldur Kioskinn:-)
Smellið á myndina til að sækja skrána. Maður er að fyllast aukinni bjarstýni eftir hraðann á þessu í dag. Vonandi verður stutt í Titanium því margir bíða.
Athugið! Best er að setja M-II forritið í möppu beint á C:\ rótina.. þ.e ekki vera með mjög langa addressu á þessu eins og: C:\Documents and Settings\steini gunn\desktop\satstuff\MII\ og svo framvegis, það getur í einstaka tilfellum orsakað villu í brennslunni. Njótið félagar - Kv. Steini
|
[ 6. apríl 2004 - Kl. 21:40]
M-II væntanlegar
Nú er talað um að M-II skrárnar fyrir conaxinn verði tilbúnar um eitt leytið í nótt. Vonandi fylgja fleiri í kjölfarið. - Kv. Steini
|
[ 6. apríl 2004 - Kl. 15:30]
Ný skrá fyrir VR3
Það er komin skrá fyrir Pentuna. Mínir menn bara snöggir í dag:-) Þetta er prófað og virkar! Smellið á myndina... - Kv. Steini
|
[ 6. apríl 2004 - Kl. 10:30]
Conaxinn úti einn ganginn
Jæja þeim tókst að loka conaxinum í þetta skiptið áður en skrár voru komnar fyrir öll kortin. Þeir skiptu sem sagt yfir í key set 20. Verðum að vona að þetta sé ekki ávísun á framhaldið:-) Reyni að fylgjast með þessu og láta ykkur vita. - Kv. Steini
|
[ 5. apríl 2004 - Kl. 02:30]
Ein leiðbeiningasíðan enn:-)
Var að skella upp leiðbeiningasíðu um hvernig forrita skuli M-II kortið. Eins og aðrar slíkar... er hún undir LEIÐBEININGAR í linkunum hérna vinstra megin. - Kv. Steini
|
[ 5. apríl 2004 - Kl. 01:30]
Er að spögulera...
Það er að heyra á þeim sem skást vita... að menn séu frekar hissa á hversu fljótt þessar fyrstu skrár fyrir MII hafi komið, jafnvel þó kisokinn vanti um borð. Þetta er heldur flóknara núna en bara að finna nýja lykilinn semn skipt var út því þeir breyttu fleiru þeir Canal menn en semsagt... nú spá menn því að styttist í skrárnar fyrir hin kortin. - Kv. Steini ps. Þið mættuð nú alverga vera duglegri að nota spjallborðið. Menn þurfa ekki að hafa neitt merkilegt til málanna að leggja...bara 'sýna sig og sjá aðra' og þannig skapa þá tilfinningu að um samfélag sé að ræða:-)
|
[ 4. apríl 2004 - Kl. 23:00]
Skrá fyrir MII.. en án Kiosk stöðvanna
Þá er komin skrá fyrir MII kortin en þó er sá galli á gjöf njarðar að í hana vantar kódana fyrir Kioskinn. Vonum að það verði lagfært fljótlega... en skárra en ekkert... -Kv. Steini
|
[ 4. apríl 2004 - Kl. 22:50]
Loksins kominn á netið aftur
Ofurtengingin frá Símanum hefur legið niðri um helgina og Skrifa.com því verið netlaust. Er að verða nett pirraður á þessu drasli... En alla vega kominn 'í loftið' í bili og er því loksins farinn að svara pósti aftur... Þið verðið að taka viljann fyrir verkið þó ég nái ekki að svara alveg um hæl... Kv. Steini
|
[ 2. apríl 2004 - Kl. 18:50]
Restin af SKY Italia dottin út á 13°
Þá er restin af Sky Italia dottin út en Digital+ pakkinn virkur á 19°. Mér finnst nú að þessir hakkarar verði að fara að ákveða hvað þeir ætla að hafa opið og hvað ekki:-) En svona er þessi business bara... Það er rétt svo að maður hafi við að uppfæra þegar svona árar... -Kv. Steini
|
[ 2. apríl 2004 - Kl. 11:00]
Slúðrið
Það er margt slúðrað á hinum ýmsu spjallborðum í augnablikinu. Á einu stað er talað um að hugsanlega komi skrár fyrir conaxinn á MII kort núna um helgina. Aðrir eru minna bjarstsýnir eins og gengur. Í dag eru öll 'eldri' áskriftarkortin á C Digital dauð svo þessir kallar eru greinilega að sprikla.
En eins og segir á Dr. Hans Online... "Fari allt vel, gætum við á næstu mánuðum verið að tala um möguleika á að 'sjá' komplett Sky Italia, Digital+, Cyfra+ og Conax pakkana... en fari allt á versta veg... gætum verið að við nytum einsks af þessum pökkum ásamt því að tapa Viasat og TV Cabo.(sem gerist m/ Cabo & Viasat...spurningin er bara hvenær)"
Á einum stað er talað um að verið sé að klára að finna útúr þessari 'hash 9x table' sem Rubert vinur okkar Murdoch breytti á Sky Italia pakkanum, en á öðrum stað er sagt að það komi ekki til með að ganga í bráð.
Svo eins og þið sjáið er það að æra óstöðugan að reyna að lesa í stöðuna í augnablikinu, en auðvitað 'reddast þetta' ...þessir hakkarar eru hvort sem er allir með Íslenska viðhorfið:-) -Kv. Steini
|
[ 2. apríl 2004 - Kl. 05:00]
Undarlega rólegt
Enn er ekkert að frétta af uppfærslum fyrir hvorki MII, BASIC eða TITANIUM. Verðum að vona að morgundagurinn færi okkur einhverjar skrár, en þó er huggun harmi gegn að það kom þó VR3 uppfærsla í gærkveldi. En allavega nenni ég ekki að prófa fleiri 1.apríl skrár í bili og er farinn í koju:-) - Kv. Steini
|
[ 1. apríl 2004 - Kl. 21:30]
Skrá fyrir Pentacard Vr3
Loksins! Jæja þá er komin uppfærsla fyrir Pentacardið. Hún er prófuð og virkar og þetta er EKKI 1.apríl gabb. Njótið Hér - Sækja Uppfærsluna - Kv. Steini
|
[ 1. apríl 2004 - Kl. 18:00]
MegaPicBCEditor forritun
Var að smella inn leiðbeiningasíðu um uppfærslu á Basic Card með MegaPicBCEditor, en það er lang einfaldasta leiðin þegar um er að ræða að skipta um .IMG uppfærsluskrá. Forritið getið þið sótt Hér - Sækja Editorinn eða inní í DOWNLOAD - Kv. Steini
|
[ 1. apríl 2004 - Kl. 03:30]
Enn engin Conax skrá
Jæja núna er klukkan orðin 03:30 og enn engar fréttir að hafa af Conax skrám. Best að halla sér bara og fresta leitinni til morguns. Ef þið rekist einhversstaðar á eitthvað sem virkar þá vinsamlega sendið mér:-)- Kv. Steini
|
[ 1. apríl 2004 - Kl. 13:00]
Enn engar fréttir
Enn er engar fréttir að hafa af conax update. UPDATE SOON!!! segja framleiðendur VR3 kortsins, og hafa svo sem sagt síðan í gærmorgun, svo við verðum bara að vona að þetta verði stutt 'soon'. Kv. Steini
|
[ 1. apríl 2004 - Kl. 03:30]
Enn engin Conax skrá
Jæja núna er klukkan orðin 03:30 og enn engar fréttir að hafa af Conax skrám. Best að halla sér bara og fresta leitinni til morguns. Ef þið rekist einhversstaðar á eitthvað sem virkar þá vinsamlega sendið mér:-)- Kv. Steini
|
[ 31. mars 2004 - Kl. 20:30]
NÝ SECA2 skrá
LEIÐRÉTTT [31.mars kl. 23:00] - Jæja gott fók. Þá er komin SECA II skrá sem opnar allt dæmið aftur... þ.e D+ pakkann á Astra1 ásamt þeim hluta Skypakkans sem eftir var. Njótið vel!
Er enn í vandræðum með ofurtenginguna frá Símanum svo ég get eingöngu uppfært stopult í kvöld. Síminn klikkar ekki...hann hjálpar mér sko EKKI að láta það gerast...! Kv. Steini
|
[ 31. mars 2004 - Kl. 13:30]
Conaxinn dottinn út
Í morgun datt conaxinn út af öllum kortunum þ.e.VR3, Titanium, Basic og M2 og einnig varð Magic Cam pentan óvirk. Þetta stafar af OP key skiptum yfir í key 20. Ástæðan fyrir því að t.d VR3 er ekki AU(Auto Update) er sú að þá gæti CD gert kortið varanlega óvirkt. En það er svo sem á sig leggjandi að brenna stundum á kortin í skiptum fyrir þetta:-)- Ég reyni að fylgjast með þessu og láta ykkur vita um leið og eitthvað gerist.
XDSLð datt út hjá mér svo það hefur ekki reynst unnt að koma þessum fréttum uppá netið fyrr. Sorry! Kv. Steini
|
[ 30. mars 2004 - Kl. 19:30]
Seca2 skrá fyrir Titanium
Hér er komin skrá fyrir Titanium þ.e Seca2 skrá sem opnar Astra1 stöðvarnar,((Smellið á myndina)) en enn bíður Sky Italia betra tíma. Prófuð og Virkar! Þessi skrá er sögð eingöngu fyrir Titanium BLÁTT Ég prófa hana samt á hvíta kortið líka og læt ykkur vita. - Kv. Steini
|
[ 30. mars 2004 - Kl. 17:50]
Uppfærsla á síðunni Samanburður Afruglara
Var að uppfæra samanburðarsíðuna fyrir afruglarana(cömin). Þið farið í linkana hérna vinstra megin og veljið AFRUGLARAR... og veljið síðan 'samanburður' undir UM CÖMIN. - Kv. Steini
|
[ 30. mars 2004 - Kl. 17:40]
Seca 2 lyklaskipti
Hún reyndist ekki langlíf fréttin hérna neðan við:-) En málið er að 19° eru dottnar útaf Titanium kortunum þegar þetta er skrifað en virka á Dreamboxinu og Dragon Caminu. Apríl lyklarnir svolluðu eru sagðir vanta á titaniumskrárnar og þeir Astramenn hafa greinilega skipt út fyrr en reiknað var með. Talað er um nýjar skrár með kvöldinu. Vonum það besta. Ég mun reyna að fylgjast með þessu og láta ykkur vita.- Kv. Steini
|
[ 29. mars 2004 - Kl. 01:40]
Seca 2 rásirnar á Astra 1 áfram virkar
Nú er talið að Seca2 pakkinn Digital+ muni haldast áfram opinn og virkur á Astra 1. Talið var að þeir hyggðu á cryptu breytingar en nú herma fréttir að það sé útaf borðinu. Vonandi reynist þetta rétt. - Kv. Steini
|
[ 27. mars 2004 - Kl. 20:00]
Sky Italia dottin út að hluta
Jæja þá er Sky liðið búið að breyta lykli á hluta dagskráinnar(Sky Italiapakkans á 13°). Enn er Sky sport 1, Cinema 1, 2 og 3 og Prima 1-6 inni en hinar Prima fila stöðvarnar dottnar út. Fleiri eru opnar, en þessar voru inni í favorites hjá mér svo ég tékkaði á þeim. Ástæðan fyrir þessu er að þeir eru að skipt um 'countermessure' á helmingi pakkans en samkvæmt heimildum munu þeir einnig skipta út á hinum hlutanum jafnvel í nótt eða á morgun. Verið er að vinna í því að finna lausn á þessu en þangað til er bara að njóta þess sem er... - Kv. Steini
|
[ 27. mars 2004 - Kl. 12:50]
5 nýjar rásir Canal+ á Thor á 1°w
Frá og með 1.maí verða 5 viðbótarrásir hjá Canal+. Flaggskipið mun áfram heita Canal+, en þar verður hægt að horfa á nýlegustu myndirnar, íþróttir og seríur, en 4 kvikmyndarásir gera það að verkum að þú getur alltaf valið á milli 3 kvikmynda hverju sinni.
Því til viðbótar bætist svo við kvikmyndarásin C More Film, sem kemur til með að sýna það besta af kvikmyndum seinustu 30 ára.
Og íþróttaáhugamenn fá einnig sína eigin íþróttarás, þar sem Canal+ býður uppá tvöfalt fleiri keppnir ásamt fleiri nýjum íþróttagreinum.
Canal+
Á aðalrás Canal+ verða frumsýndar minnst 25 kvikmyndir mánaðarlega.
Frumsýningarnar fara í loftið kl. 21 og þann 1. maí hefst veislan með Hringadróttinssögu - Tveggja turna tali, strax að lokinni endursýningu á Hringadróttinssögu - Föruneyti hringsins.
Á þessari rás verða einnig sýndir allir toppleikirnir úr Premier League, Serie A og NHL ásamt þættinum "Premier League Lørdag".
Canal+ Film 1
Hreinræktuð kvikmyndarás sem sýnir á tveggja stunda fresti, á besta tíma, þ.e kl. 19, 21 og 23.
Canal+ Film 2
Hreinræktuð kvikmyndarás sem sýnir á tveggja stunda fresti á heila tímanum þ.e kl. 20 og 22 og hér eru myndirnar sýndar í 16:9 og Dolby Digital 5.1.
C More Film
Hér eru sýndar helstu perlur sinustu 30 ára. Kl. 21.00 á kvöldin er frumsýnd mynd eins og "Love Story", "French Connection", "Maraton man", "Chinatown", "Room with a view", "The Mission" og "Happiness".
Canal+ Sport
Þessi nýja sprtrás verður með Premier League, Serie A og NHL. Canal+ Sport býður þar að auki uppá spennandi nýjungar eins og t.d. mótorsport, box og golf. Einnig verða þar sýndir nokkrir leikir úr sænsku Allsvenskunni og Elitserien og úr norsku deildinni.
- Kv. Steini
|
[ 24. mars 2004 - Kl. 14:30]
[ 23. mars 2004 - Kl. 15:30]
[ 23. mars 2004 - Kl. 14:00]
[ 23. mars 2004 - Kl. 13:00]
[ 23. mars 2004 - Kl. 04:40]
[ 23. mars 2004 - Kl. 01:00]
Skrá komin fyrir Mll kortin!
- Þá er C*n*x skrá komin fyrir M2 kortin og svínvirkar. Þið unzippið skrána í möppu, smellið á M-II.exe, setjið M2 kortið í brennarann(stilltan á 3,58Mhz/Phoenix mode/Com1) og smellið á 'Program' - Gerist ekki mikið einfaldara. Tekur 2-3 mínútur að forritast. Vonandi fylgja skrár fyrir hin kortin í kjölfarið. Ég mun reyna að fylgjast með þessu fram á nóttina og smella inn ef eitthvað gerist. Njótið vel. Kv. Steini
|
[ 22. mars 2004 - Kl. 14:00]
Thor 1°w dottinn út! - Þá er C*n*x dottinn út, allavega í bili, en um kl. 10 í morgun voru lyklaskipti þ.e nýr lykill 20 settur í notkun. Við skulum vona að hann verði birtur fljótlega svo nýjar skrár finnist sem allra fyrst. Þangað til verður restin að duga okkur. Það datt allt út, þ.e Pentacard, M2, Basic Card og Titanium. Ég mun setja inn fréttir af þessu jafnharðan og þær berast. Þeir Pendacardmenn segja á heimsíðu sinni: 22/03/04 UPDATE SOON !! og margir telja að þær skrár þurfi að koma fyrst og síðan séu lyklarnir hakkaðir frá þeim kortum til brúka fyrir okkur almúgann:-) - Kv. Steini
|
[ 19. mars 2004 - Kl. 04:10]
VÆNTANLEGT & SKY VAL - Var að skell inná Versla.com síðunni VÆNTANLEGT en þar er finna nokkrar af þeim vörum sem ég er að bæta við verslunina. Þar er hægt að panta vörurnar sem verða til afgreiðslu í næstu viku. Þá var ég að bæta inn enn einum link undir TV-GUIDES fyrir þá sem eru með SKY. - Kv. Steini
|
[ 19. mars 2004 - Kl. 01:05]
Árás á Skrifa.com?
- Um klukkan 10:30 í kvöld(fimmtudagskvöld) hefur að öllum líkindum verið ráðist inná serverinn sem skrifa.com er vistaður á í Bretlandi(óstaðfest) Þeir sem á þessum tíma komu inná síðuna fengu að mér skilst einhverja lesningu upp um tilboð á því að vista vefinn eða eins og einn skrifaði:
"Mér er beint inn á enska síðu sem býðst til að vista skrifa.com... og sendir svo dialera og vírusa í búnkum. Vona að þetta sé ekki árás frá Murdoch :-)"
Ég hef skrifað hýsingaraðilunum og vonandi skýrist þetta fljótlega. Allavega vona ég að bréfritarinn hafi ekki rétt fyrir sér með Rubert Murdoch, enda hlýtur Rubbi kallinn að hafa nóg með SKY og NDS Videoguard þó ekki fari hann að taka að sér Skrifa.com líka, enda varla sleipur í íslenskunni:-)- Kv. Steini
|
[ 18. mars 2004 - Kl. 15:05]
Þið náið í mig í gemmsanum
- Það næst eingöngu í mig í gemmsanum frá kl. 15:30 og framúr í dag.
Þarf að skreppa bæjarleið og mun því ekki svara pósti heldur fyrr en seint í kvöld. En sem sagt það verður ekkert mál að ná í mig í síma 893 5804 - Kv. Steini
|
[ 18. mars 2004 - Kl. 02:20]
Fótboltafréttir - Frá og með ágúst 2004 mun TPS sýna Premiershippið beint. Þeir koma til með að gera þetta á rásinni TPS Star á Hotbird, en einnig hyggjast þeir bæta við annari rás til að geta sýnt fleiri leiki. Það er óskandi að þetta verði áfram opið í TPS(sem er Viaccess afbrigði og einfalt að opna) - Kv. Steini
|
[ 13. mars 2004 - Kl. 00:05]
Afgreiðsla um helgina - Athugið! Þeir sem vilja frekar nálgast kortin um helgina, stendur til boða að sækja kortin hingað á Fossheiði 5 eða fyrir þá sem það hentar að fá þau send með rútunni á BSÍ í REYKJAVÍIK. Annars fara þau í póst á mánudagsmorgun og verða borin út á þriðjudag. Þið getið verslað Titanium kortið með því að smella á myndina hér til hliðar! Og auðvitað einnig með því að slá á þráðinn í 482 3929 & 893 5804 eða með því að senda e-mail Vinsamlega takið fram hvora skrána þið viljið hafa á kortinu. - Kv. Steini
|
[ 10. mars 2004 - Kl. 00:55]
 Varist eftirlíkingar! Nú eru komnar á markaðinn eftirlíkingar af Titanium, sem í flestum tilfellum er hvítt kort, en þó eru þær einnig til með sama útliti og 'Orginal kortin'.
Þessi kort virka öll fyrir Seca2 og ef þau innihalda snertur sem SAGEM er grafið í þá er óhætt að skrifa Seca skrárnar á þau. Einnig ef um blátt kort er að ræða með Hologrami(Glitmynd) þó sagem vanti á snerturnar. Sama á við um þessi hvítu, ef sagem er grafið í snerturnar er í lagi að skrifa á þau, en ef Sagem vantar... þá deyr kortið. Ég hef ekki viljað vera með þessi hvítu kort svo ég hef ekki getað sannreynt þetta, en hef vísdóminn um þetta frá KinkDink á Satdudez. Betra að vera 'Safe than Sorry' - Kv. Steini
|
[ 9. mars 2004 - Kl. 02:05]
 SECA2 SKRÁR fyrir Titanium Jæja þá er komin Seca2 skrá fyrir Titaniumkort(SKY ITALIA pakkinn á Hotbird). Þið athugið að nauðsynlegt er að uppfæra hugbúnað kortsins í 1.06 og þaraf leiðandi þurfið þið Titanium Progger version 1.10 [ SÆKJA 1.10 ] Þetta er prófað á: Magic Modul, XCam, Aston Seca Cam og Matrix Reloaded. Þetta sem sagt svínvirkar:-) - Kv. Steini
|
[ 7. mars 2004 - Kl. 23:50]
 STAÐA LEIKJA Var að setja inn link í glugganum hér ofan við sem heitir STAÐA LEIKJA, en með því að smella á hann getið þið séð stöðu leikja hverju sinni. Athugið að með því að smella á CUSTOMIZE LAYOUT getið þið valið um hvaða úrslit birtast. - Kv. Steini
|
[ 6. mars 2004 - Kl. 16:50]
 FORMULA1 UPPLÝSINGAR Var að setja inn link undir TV-GIUDES fyrir Formula1 en með því að smella á hann, birtist gluggi með öllum upplýsingum um á hvaða hnöttum sýnt er, á hvaða rás, hvaða crypta er notuð eða hvort sýning er FTA og klukkan hvað... þ.e allar upplýsingar. - Kv. Steini
|
[ 6. mars 2004 - Kl. 01:15]
 SECA2 FTA STÖÐVAR Á Astra 1 á 19,2°e er verið að sýna FTA á Kiosque á transpondernum: 12245V, SR 27500. Þessar stöðvar koma inn sem SATMODE PPV 1 & 2 og síðan SATMODE TEASER - Enskt tal og fín gæði - Góða skemmtun! - Kv. Steini
|
[ 5. mars 2004 - Kl. 23:25]
 DRAGON CAM Fyrsta sendingin af Dragon Caminu er uppseld en ég var að fá staðfest að ég fæ aðra sendingu, sem verður til afhendingar á miðvikudaginn. Verðið er kr. 24,500.. fyrir CAM + LOADER KORT og að sjálfsögðu er sendingarkostnaður innifalinn eins og alltaf. -
Svo er ég að auðvitað búinn að að setja upp Leiðbeiningarsíðu fyrir Dragoninn en þar er einnig að finna hvort tveggja hugbúnaðinn Dragonload.exe og svo nýjustu Predator skrána, PREDATOR 1.1 (þessa með Seca2 opnuninni ) - Góða skemmtun! - Kv. Steini
|
[ 5. mars 2004 - Kl. 12:25]
 SECA 2 HAKKAÐ! Jæja þá er loksins búið að hakka Seca2 þ.e á Dragon Caminu. Þetta er reyndar bara einn provider sem enn er opinn þ.e SKY ITALIA. Þetta virkar sem sagt á DragonCam og Dreambox model 5620 enn sem komið er. Einnig er talað um að fljótlega verði til skrá fyrir Titanium en það er þó óstaðfest enn. Hér er skráin fyrir Dragon camið.- Kv. Steini
|
[ 5. mars 2004 - Kl. 00:20]
 Internetvandræði Til stendur að tengja inn háhraða XDSL beinlínutengingu hjá okkur í dag, föstudag og getur orðið erfitt að ná í okkur í heimasímann af þeim sökum. Hins vegar verður gemmsinn virkur svo það er bara að hringja í 893 5804. Tefjist framkvæmdirnar, þ.e ef ekki næst að klára málið í dag, verður lítið um uppfærslur um helgina en þó mun ég smella inn ISDN annað slagið og sinna póstinum. - Kv. Steini
|
[ 3. mars 2004 - Kl. 00:20]
 Ný XXX rás á Hotbird 13° Nú hefur erótíska rásin "XSTREAM" hafið FTA útsendingar á 13°. Tíðnin er: 12476H, SR:27500, FEC:3/4. Samkvæmt heimasíðu rásarinnar [ SKOÐA ], sem reyndar er á þýzku þá munu þeir áfram verða með opna rás. - Kv. Steini
|
------------------------------------------------------
FRÉTTIR 2004
[ ELDRI FRÉTTIR - JAN - FEB - 2004 - Lesa... ]
FRÉTTIR 2003
[ ELDRI FRÉTTIR - SEP - OKT - NÓV - DES 2003 - Lesa... ]
[ ELDRI FRÉTTIR - JÚN - JÚLÍ - ÁG - SEPT 2003 - Lesa... ]
[ ELDRI FRÉTTIR - APR - MAÍ 2003 - Lesa... ]
[ ELDRI FRÉTTIR - JAN - FEB - MAR 2003 - Lesa... ]
FRÉTTIR 2002
[ ELDRI FRÉTTIR - 2002 - Lesa... ]
|