
FRÉTTIR AF SKRIFA.COM - JÚNÍ - JÚLÍ - ÁG - SEPT - 2003
[ 29. september 2003 ]
 |
|
Pentacard leiðbeiningar Var loksins að setja upp 'skref fyrir skref' leiðbeiningar fyrir forritun(brennslu) á PentaCard Vr3. Þú getur kíkt á þetta með því að [ smella hérna ]
Forritið sem notað er til verksins heitir WinExplorer 4.5 er innifalið í skránni: penta_3_cnx.zip sem hægt er að nálgast í DOWNLOAD undir hlekknum FORRITIN |
| Þar eru einnig linkar á logskrár af þeim aðgerðum sem brennarinn framkvæmir er hann forritar kortið. Þá er ég einnig búinn að bæta við almennri síðu um Pentacard, þú ferð í KORTIN og velur þar PENTACARD. Þar er að finna tækniupplýsingar um kortið og almennan fróðleik. - Kv. Steini |
[ 28. september 2003 ]
Premiere Direkt stöðvarnar Hér neðan við eru upplýsingarnar um Premiere Direkt PPV stöðvarnar á Astra 1, á 19,2°austur, sem oftast koma fram sem 'unnamed' í menui móttakaranna. Þarna er t.d Formula1 sýnd, æfingar, tímatökur og keppnir, á nokkrum stöðvum þar sem hægt er að velja á milli sjónarhóla. Hörku stöðvar sem sárt verður saknað þegar þær fara yfir í nýja cryptu, Premiere Nagravision, innan tíðar.
| TRANSPONDER |
NAFN STÖÐVAR |
NÁNAR |
SID |
V-PID |
A-PID |
Transponder: 11720 H
tp 65
SR 27500
FEC 3/4 |
 |
+1 |
240 |
2047 |
2048 ÞÝS 2049 ORG |
 |
+1 |
241 |
2303 |
2304 ÞÝS 2305 ORG |
 |
+1 |
242 |
2559 |
2560 ÞÝS 2561 ORG |
 |
+1,5 |
243 |
2815 |
2816 ÞÝS 2817 ORG |
 |
+1,5 |
244 |
3071 |
3072 ÞÝS 3072 ORG |
 |
+0,5 |
245 |
3327 |
3328 ÞÝS 3329 ORG |
Transponder: 11758 H-tp67 SR 27500 FEC 3/4 |
 |
+0,5 |
211 |
511 |
512 ÞÝS 513 ORG |
Transponder: 12032 H
tp 81
SR 27500
FEC 3/4 |
 |
|
208 |
3071 |
3072 ÞÝS 3073 ORG |
 |
|
209 |
3327 |
3328 ÞÝS 3329 ORG |
 |
|
210 |
2303 |
2304 ÞÝS 2305 ORG |
Transponder: 12070 H tp 83 SR 27500 FEC 3/4 |
 |
+1 |
212 |
511 |
512 ÞÝS 513 ORG |
[ 24. september 2003 ]
Fleiri stöðvar - Með því að setja handvirkt inn rétt Video(Vpid)- og Audio(Apid) getið þið náð eftirfarandi stöðvum á 12731H á 13°austur(Hotbird):
Eurosport, Vpid 2825 Apid 2826
Milan TV, Vpid 2829 Apid 2830
Inter TV, Vpid 2827, Apid 2828
Njótið meðan notið verður... - Kv. Steini
[ 19. september 2003 ]
Af norðurlöndunum - Ég fékk bréf frá einum kollega minna í Noregi í gær vegna fyrirspurna um ákveðin kort og í svari hans kom m.a. fram að Canal Digital sé með herferð í gangi gagnvart þeim sem eru að selja smartkort í Noregi, Danmörku og Svíþjóð. Hann tók sem dæmi að danska vefsjoppan VDG mætti ekki lengur selja smartkort í Danmörku, samkvæmt réttarúrskurði, úrskurði sem kom tæpum mánuði eftir að þeir hófu sölu á Pentacardinu marg umtalaða. -Það er kannski ekkert svo slæmt eftir allt saman að ekki skulu vera seldar Canal áskriftir til Íslands... Þeir hafa þá varla áhyggjur af okkur á skerinu á meðan. - Kv. Steini
[ 9. september 2003 ]
Af Dragon Module - Það reyndist ekki of vel fyrsta sendingin af Dragon Caminu. Heimildir segja að lóðning hafi verið gölluð á borði þeirra og því til viðbótar hafi ekki verið búið að samhæfa það nema einstaka móttakara. Framleiðundurnir lofa lagfæringum og eru á fullu að samræma cömin fleiri gerðum móttakara þessa dagana. Kannski er fall fararheill hver veit. Hugmyndin er alla vega góð. - Kv. Steini
[ 9. september 2003 ]
Af PentaCardinu - Þessa dagana fer fram hatrömm deila um þessi kort, sem reyndar allt er óskaplega á huldu með. Menn eins og Toecutter og Shack... sem eru að reka spjallborð hafa tekið sig saman um að veita ekki aðgang að skrám sem þarf til að brenna á Penta kortin, en þau eru seld tóm og síðan þarf viðskiptavinurinn að innsetja ákveðna skrá á kortið til að virkja það. Þessum gæjum finnst ekki verjandi að styðja þessa(eða þennan) gæja sem er að taka um 40.000 fyrir stykkið. Kannski snefill af öfund í þessu :-) en þetta er samt sem áður skelfilegt verð(og þetta er verðið úti+ aðflutningsgjöld) fyrir kort sem maður hefur enga tryggingu fyrir að virki. Og það sem meira er... það er vonlaust að kynna sér þá aðila sem eru að selja þetta, en þeir hylja slóð sína vandlega. Flestir eru þó sammála um að hér sé gamalkunnur Alan Reeks að baki, en það er maður sem til að mynda á ekki afturkvæmt til Bretlands vegna svikamála. SVO FARIÐ VARLEGA BÖRNIN MÍN - Kv. Steini
[ 30. ágúst 2003 ]
Smanburðartafla yfir brennslutíma - Var að henda upp síðu með brennslutímatöflu yfir mismunandi brennara og hugbúnað. Hægt er að raða brennurum og hugbúnaði eftir stafsrófsröð með því að smella á viðeigandi HAUS í töflunni þ.e þannig að A sé efst...eða neðst, ef aftur er smellt á sama haus. Síðan er hægt að velja t.d. FUN og raðast þá sá brennari sem er fljótastur(eða hægvirkastur ef smellt er aftur.) SKOÐA SAMANBURÐINN - Annars heitir linkurinn BRENNSLUTÍMAR undir linknum Brennarar
[ 26. ágúst 2003 ]
[ 23. ágúst 2003 ]
Breytingar - Eins og þið hafið eflaust flest tekið eftir hefur Phills Files legið niðri og því er ykkur bent á Tonydoe's eða Laurals til að nálgast hex fælana. Þið einfaldlega HÆGRI klikið hér á síðunni og veljið viðeigandi síðu. Á Toe's Files þurfið þið að skrá ykkur inn(registera) í fyrsta skipti sem þið nýtið ykkur það svæði. - Kv. Steini
[ 22. ágúst 2003 ]
 |
|
CAS INTERFACE-ið komið í hús - CAS forritunarsettin komu í morgun og eru pantanirnar þegar farnar í póst. Verðið á einingunni, sem samanstendur af CAS FORRITARA, FLATKAPLI og CAS SPJALDINU, er kr. 15.900.- ( Sjá Versla.com ) einnig geta menn lesið um þennan búnað með því að smella á CAS INTERFACE undir AFRUGLARAR í linkunum vinstra megin. |
Athugið! Næstu daga kemur ný uppfærsla á hugbúnaðinum þ.e. Cas Studio 2.1 og er sú uppfærsla 10 sinnum hraðvirkari á WIN 2000 og XP en fyrirrennarinn.
[ 22. ágúst 2003 ]
LOKSINS... - Ég vildi bara láta ykkur vita að ég væri ekki dauður! Var að skipta um internetþjónustu og það urðu tafir á uppsetningu vegna vírusflóðanna. En semsagt Back in Business!
[ 11. ágúst 2003 ]
DreamCard2 - Útskýring - Þegar upplýsinga um DreamCard-ið svokallaða er leitað er auðvelt að ruglast í ríminu. Kortið er ýmist kallað DreamCard2, DC2, PentaCard VR2 eða Omega sem reyndar er rétta nafnið á kortinu. Gömlu DreamCardin voru með kort m/Siemens chipsetti en Omegan sem nú er notuð er með Atmel Chippi. Þess vegna eru skrárnar sem nú eru brenndar á kortin ýmist kallaðar penta-fix, Conax-fix, Omega-fix eða hvað þær heita nú. Málið er að þetta er allt sama tóbakið. Þessi uppfærsla(kortaskipti) sem nú er í gangi er eingöngu gagnaviðbót fyrir kortið. Síðan er líklegt að það verði að skipta kortinu út innan tíðar og þá fyrir svokallað Omega2 kort(sem verður manna á milli trúlega annaðhvort kallað PentaVR3 eða DreamCard3) - Kv. Steini
[ 11. ágúst 2003 ]
DreamCard2 - Uppfærsla - Þið þurfið WinExplorer 4.5 eða nýrri og hafa brennarann stilltan á 3,58Mhz. Ok kortið í brennarann - opnið WinExplorer --> farið í FILE/Open Script --> veljið FS.XVB skrána og smellið á OPEN -->farið síðan í CARD hnappinn og veljið EXECUTE SCRIPT veljið síðan KC.BIN skrána og smellið á OPEN
Þetta tekur nokkrar sekúndur og síðan er DC bara stungið í Conaxinn og Wholla... Skrárnar eru í DOWNLOAD (eða smella hér) - Kv. Steini
[ 9. ágúst 2003 ]
DreamCard2 - Eftirfarandi upplýsingar eru í dag á heimasíðu þeirra sem flestir hafa verslað við:
...CONAX CARD UPGRADE NOW READY............PLEASE.........RETURN THE CARD WITH £5 FOR SECURE GUARANTEED DELIVERY......... TURNAROUND 24 HRS...
Spurningin er hvort ekki er hægt að redda þessu bara með WinExplorer og fælunum sem nú svífa um netið. Ætla að skoða málið. - Kv. Steini
[ 7. ágúst 2003 ]
| Nýi Infinity USB/Phoenix brennarinn er kominn! |
 Smelltu á til að stækka myndina |
|
Ég er búinn að setja upp síðu um eiginleika brennaranna frá WBE(framleiðendum Infinity) og er hún undir TÆKNIHLIÐIN í linknum BRENNARAR hérna vinstra megin. Infinity Phoenix USB/ Phoenix brennarinn er nýjasta afurðin og er sýnd hér á myndinni vinstra megin.(Smella á myndina til að stækka) - Þessi brennari er með tvær gerðir tengja þ.e bæði USB og DB9 pinna Serial(RS-232). Með þessi tvö aðskildu tengi er Infinity-inn orðinn sannkölluð galdragræja. Það hafa margir beðið þess að fá brennara sem hefði hvort tveggja USB og Serial tengimöguleika og nú er þetta orðið að veruleika. |
[ 6. ágúst 2003 ]
Jæja loksins er þessi uppfærsla komin í loftið. Var að setja upp síðu fyrir Cas Interface-ið(græjan til að forrita biluð cöm) og er hugbúnaðurinn einnig kominn í download.
Eins og þið sjáið þá hef ég breytt linkunum vinstra megin og sorterað efnið eftir atvikum. Einnig hef ég bætt inn talsverðu efni svo það er bara að fara að fletta linkunum. Þetta verður svo að slípast næstu dagana og ég að bæta inn og þurkka út augljósustu villurnar. Þið takið vonandi viljann fyrir verkið. Kv. Steini |
[ 5. ágúst 2003 ]
Oops! Conaxinn dauður einn ganginn Það slökknaði á DreamCard 2 í dag og á heimasíðu þeirra sem flestir hafa verslað við, segjast þeir þurfa nokkra daga til að kippa þessu í liðinn. Eða eins og segir á síðunni: ....CONAX CARDS FAILED TODAY- PLEASE GIVE US SOME TIME TO RECTIFY THIS AND CALL US ON MONDAY FOR AN UPDATE................
Við verðum að vona það besta...enda vanir menn. Kv. Steini |
[ 5. ágúst 2003 ]
| Jæja Við erum á fullu að breyta síðunni og þess vegna hefur verið heldur lengra á milli uppfærslna síðustu dagana. Þetta klárast vonandi á morgun og þá hendum við þessu upp. - Kv. Steini |
[ 31. júlí 2003 ]
| Nýi Infinity Phoenix USB brennarinn kemur í vikunni og verður til afgreiðslu um næstu helgi. Ég er búinn að setja upp síðu um eiginleika brennaranna frá WBE(framleiðendum Infinity) og er hún undir TÆKNIHLIÐIN í linkunum hérna vinstra megin |
 Smelltu á til að stækka myndina |
|
Infinity Phoenix USB/ Phoenix brennarinn er nýjasta afurðin og er sýnd hér á myndinni vinstra megin.(Smella á myndina til að stækka) Þessi brennari er með tvær gerðir tengja þ.e bæði USB og DB9 pinna Serial(RS-232). Með þessi tvö aðskildu tengi er Infinity-inn orðinn sannkölluð galdragræja. Það hafa margir beðið þess að fá brennara sem hefði hvort tveggja USB og Serial tengimöguleika og nú er þetta orðið að veruleika. |
[ 23. júlí 2003 ]
Sky rásalistinn - Var að henda upp síðu með rásalista fyrir Sky móttakarana, röðuðum eftir EPG númerinu í boxunum. Kv. Steini
[ 23. júlí 2003 ]
Beckham í beinni - ITV2 hefur keypt sýningarréttinn í Bretlandi á fyrstu leikjum David Beckham's með Real Madrid, í Asíu-æfingarferð þeirra núna áður en seasonið byrjar. Fyrsti leikurinn sem Beckham leikur fyrir spánverjana, á móti China Dragons, verður þann 2. ágúst kl. *12:30pm að breskum tíma, og í framhaldinu 3 leikir... þann 5. kl. *10:45am, þann 8. kl. *12:45PM og síðasti leikurinn fer svo fram þann 10. ágúst kl.*12:45PM. *Allir tímar miðast við local tíma í Bretlandi
[ 23. júlí 2003 ]
Premier league - Réttur þeirra á Sky til útsendinga á boltanum gæti lent í borði hjá Eftilitsstofnun ESB, gangi úrvalsdeildin að tilboði Sky, sem hljóðar uppá að þeir kaupi alla 3 sýningarpakkana og verði þar með 'einráðir í boltanum'.
Sagt er að Sky hafi boðið háa upphæð, með því skilyrði að þeir fengju alla 3 pakkana, þ.e allan réttt til beinna útsendinga í boltanum. Fái þeir hinsvegr ekki alla pakkana, fellur tilboðið niður og lækkar umtalsvert sú greiðsla sem þeir bjóða í staka pakka. Svona tilboð er líklegt til að pirra Eftirlitsstofnunina, sem hefur nú þegar viðrað áhyggjur sínar af ráðandi markaðsstöðu SKY.
[ 17. júlí 2003 ]
Þær reyndust ekki greinagóðar upplýsingarnar sem Framleiðendur Infinity sendu mér fyrir nokkrum vikum um nýjan hugbúnað til þýðingar. Samkvæmt bréfinu frá þeim er hugbúnaðurinn sagður 'Upgrade to the Infinity prog' og ég tók það eðlilega eins og þeir sögðu og fullyrti hér á síðunni að næsta uppfærsla styddi phoenix mode. Nú er komið í ljós að í raun er um nýjan brennara að ræða og kann ég Jakobi, eiganda WBE, litlar þakir fyrir ónákvæmnina. En sem sagt þetta leiðréttist hér með.
 Munið að snúa snertum kortsins niður. |
|
Nýi Infinity Phoenix USB brennarinn
Infinity Phoenix USB Brennarinn er í flokki svokallaðra Universal brennara og er nýjasta afurðin frá þeim sýnd hér á myndinni vinstra megin.
Þessi brennari er með tvær gerðir tengja þ.e bæði USB og DB9 pinna Serial(RS-232).
Með þessi tvö aðskildu tengi er Infinity-inn orðinn sannkölluð galdragræja. Það hafa margir beðið þess að fá brennara sem hefði hvort tveggja USB og Serial tengimöguleika og nú er þetta orðið að veruleika. |
Það að hann sé kominn með Phoenix/Smartmouse ham til viðbótar þeim sem fyrir voru kemur honum í flokk Universal brennaranna og hvað varðar hraða ber hann höfuð og herðar yfir alla aðra universal brennara. Þá styður hann nánast allar gerðir korta, og í það minnsta allar þær algengustu.
 |
|
Infinty Phoenix USB Brennaranum fylgir leiðbeiningabæklingur og allt gott textahlið hans að segja nema það að skjámyndirnar í honum eru vart læsilegar fyrir það hversu smáar þær eru
(myndin hér til hliðar er nánast í réttum hlutföllum og er rétt breidd hennar 16cm.
|
Þetta er langhraðvirkasti brennarinn á markaðnum og honum fylgir geisladiskur með innsetningarforriti og Manual sem fyrr segir. Hann verður til sölu á versla.com um leið og afhending hefst hjá framleiðendum. Kv. Skrifarinn
|
[ 15. júlí 2003 ]
 |
|
Framleiðendur "Magic Module", Dream Multimedia, töpuðu áfrýjun sinni fyrir hæstrétti þýskalands í dag. Samkvæmt dómnum er þeim ekki lengur heimilt að framleiða og dreifa MM í þýskalandi, en þetta er enn ekki farið að hafa áhrif utan landsins. |
SCM, sem eru rétthafar á framleiðslu CI cama, stefndu Dream fyrir dómstóla og fullyrtu að þeir hefðu engin leyfi veitt Dream Multimedia, og bara nafnið Magic eitt og sér gæfi fyllilega til kynna til hvers MM væri hugsað, þ.e til þess, með réttum hugbúnaði, að afrugla hinar ýmsu gerðir afruglunarkerfa, og féllst rétturinn á það sjónarmið SCM.
Dream Multimedia hefur nú þegar stöðvað alla dreifingu MM innan þýskalands.
Þeir hafa jafnframt kynnt réttinum(þ.e. einkaleyfis deildinni) sína nýjustu afurð, sem er 'DreamCrypt' Cam. Þetta cam styður nýja erótíska rás sem þeir segja að komi í loftið innan tíðar?????? Og hefur rétturinn samþykkt leyfið en þó með þeim skilyrðum að nýja camið beri nýtt nafn og megi ekki líta eins út og gamla MM. Einnig verða þeir að selja camið með nýja 'DreamCrypt' hugbúnaðinum.
Svo er bara stóra spurningin hvort þessi sjónvarpsrás fer einhverntímann í loftið eða hvort þetta er bara trix til að koma nýja caminu á markað...Hver veit? - Kv. Steini
[ 14. júlí 2003 ] Var, að gefnu tilefni, að smella upp síðu yfir allar tíðnir og stillingar fyrir opnu BBC stöðvarnar. Mönnum hefur gengið misjafnlega að átta sig á því að oft þarf að setja þessa transpondera manualt inn í hugbúnað móttakaranna. Kv. Steini
[ 10. júlí 2003 ] Núna kl. 15:30 tilkynntu þeir BBC-menn að samningar hefðu tekist um útsendingar á boltanum og fylgir tilkynningin hér neðan við.

|
10. júlí - FÓTBOLTASAMNINGAR Í HÖFN |
|
BBC retains TV rights
The BBC and BSkyB will share a four-year deal to cover England matches and the FA Cup.
The two broadcasters have agreed a rights deal with the Football Association to screen the association's key competitions including the FA Cup, England teams, the Community Shield and the FA Women's Cup.
The agreement will commence in 2004/5 and conclude at the end of the 2007/8 season.
The new deal covers the planned opening period for the new national stadium at Wembley.
Announcing the new arrangements, new FA chief executive Mark Palios, said: "We are delighted to be renewing our partnerships with both BBC and BSkyB.
| |
HIGHLIGHTS OF THE NEW DEAL
All England home senior internationals exclusively live on BBC, highlights and delayed broadcast on Sky
Three FA Cup matches per round from rounds three to six live on BBC, one per round live on Sky
First-choice FA Cup semi-final live on BBC, other semi-final live on Sky Both broadcasters to screen FA Cup final live |
"Both broadcasters have given us fantastic support in the past two years and we are looking forward to cementing our excellent relationships for a further period.
"The deal is an important step in the process of providing financial stability to The FA. It also enables much greater access to top quality football for an even larger number of people."
The BBC's director of sport, Peter Salmon, added: "The new partnership with the FA will enable the BBC to give terrestrial audiences unprecedented access to the England team during their passage to the World Cup in 2006.
"Our production teams and talent have also worked hard over the last two years to bring back the magic of the FA Cup and we look forward to building on our successes over the next four years."
|
[ 10. júlí 2003 ]

- Til hamingju með daginn!
|
Jæja þá eru allavega fyrstu 6 rásirnar hjá BBC komnar FTA(Free To Air) í loftið á Astra 2 á 28,2°austur. BBC3 og BBC4 hefja svo útsendingar kl.18 í kvöld.
Transponderinn er 10773 H - SR 22000. Þú getur smellt á myndirnar hér neðan við til að kíkja á dagskrá hverrar stöðvar. Kv. Steini
[ 8. júlí 2003 ]
 |
|
SKY dagskráin! -
Var að smella upp síðu með dagskránni fyrir sky móttakarana. Þetta er 'fengið að láni' frá þeim skymönnum og vonandi kemur þetta til með að virka áfram. Þið látið mig vita ef þetta klikkar eitthvað. Kv. Steini |
[ 3. júlí 2003 ]
Smá tilkynning! -
Pantanir á versla.com sem framkvæmdar eru eftir kl 18 í dag fimmtudag, munu ekki verða afgreiddar á pósthús fyrr en á mánudagsmorgun. Þarf að skreppa úr bænum í kvöld og kem ekki aftur fyrr en eftir pósthúslokun annað kvöld. Vonandi kemur þetta sér ekki illa. Verð með gemsann á mér, síminn er 893 5804. Kv. Steini
[ 3. júlí 2003 ]
Premiere skiptir um afruglunarkerfi -
Premier mun að öllum líkindum skipta úr Betacrypt yfir í hið nýja Premiere/Nagra í október 2003. Að sögn þýskra fjölmiðla, hefur Klaus Bechtold, vara forstjóri Nagravision SA, staðfest við Premiere, að vinnan við nýju cryptuna sé vel á veg komin og verði vel innan þess tímramma sem samið var þ.e fyrir endaðan september.
Nýja cryptan, sem ber vinnuheitið Aladin, hefur verið prufukeyrð síðustu 2 árin og er með multi-level öryggiskerfi þ.e þeir geta breytt kóðuninni/vörninni á mismunandi tímum sólarhrings sem á að koma algjörlega í veg fyrir að hackarar geti brotið hana upp.
Einnig mun hún innihalda pörunar/giftingar möguleikann, sem t.d Sky notar, þ.e hún getur 'gift' smartkortið ákveðnum móttakara. Hins vegar hafa þeir ekki í hyggju að nota þann möguleika í fyrstu.
Premiere mun, af öryggisástæðum, ekki senda út nýju kortin fyrr en rétt fyrir skiptin, sem vonandi gerast sem allra seinast. Það munu margir sakna þessara stöðva svo það er um að gera að njóta þeirra meðan kostur er. Kv. Steini
[ 2. júlí 2003 ]Nagra listinn fyrir Titanium kortið - Þessar rásir eru komnar nú þegar fyrir Titanium og eru testaðar á t.d Samsung, Hyundai, Humax, Conax CI 2.01 og Conax 4.00e, en einnig á Force móttakara með innbyggðum Conax:
Playboy -
TV/Info -
Adult Channel -
Polsat 1 - 4 -
Fox Kids -
Polsat Sport -
Discovery -
Animal Planet -
Reality TV -
Travel -
CNN INT -
TV PLUS -
CARTOON NETWORK -
EUROPA EUROPA -
CLUB -
TVP 1 og
TVP 2. Svo bætast örugglega fleiri í hópinn. Kv. Steini
[ 27. júní 2003 ]
Smá leiðrétting! - Ég var full fljótur á mér að segja að Infinityinn kæmi með Phoenix/SMartmouse í þessari uppfærslu 1.30, sem kom í dag. Málið er að sá hugbúnaður sem ég var að þýða er Ver 1.40 og kemur hann ekki út alveg strax. Meira Sorry.. En nóg um það.. Nýungarnar í þessari uppfærslu eru þessar helstar: Norsku bætt inn í tungumálaval, stóraukinn hraði á 'Endurbyggja örgjörvaminni' aðgerðinni. BlackCard(ATMega123 + 24C256 bætt við. Sjálfkennsl á PIC16C84 & PIC16F84 færð til betri vegar og svo var Custom möguleika bætt inn. Kv. Steini
[ 26. júní 2003 ]
Linkar lagfærðir - Linkarnir -samanburður móttakara og - samanburður afruglara eru komnir í lag. Það var verið að skipta um netþjón hjá hýsingaraðilunum í gærkveldi og urðu af því truflanir, þ.e. síðurnar Skrifa.com & Versla.com duttu út í um það bil 20 mínútur fyrir vikið. En sem sagt kominn nýr og hraðvirkari netþjónn svo þetta ætti ekki að koma fyrir aftur. Sorry.. Kv. Steini
[ 24. júní 2003 ]
Elvis er mættur - Elvis Multiprogrammer er kominn aftur. Var að bæta honum inn á vefverslunina. Kv. Steini.
[ 21. júní 2003 ]
 |
|
Er að leggja lokahönd á vefverslun sem kemur upp jafnvel á morgun. Þar verða allir helstu íhlutir tengdir gervihnattamóttöku til sölu svo sem flestar gerðir korta, vinsælustu afruglarar, brennarar, kaplar og fleira. Ég mun kappkosta að vera ódýrastur og það bætist enginn sengingarkostnaður við verðið, þannig að það verð sem greitt er... er fyrir vöruna heim að dyrum. Allar vörur eru sendar með Íslandspósti. Það eru 3 greiðslumöguleikar í boði, þ.e fyrirframgreitt inná reikning, VISA eða EURO. Greiðslusíða verslunarinnar er 100%örugg, 128bita læst SSL dulkóðuð, með öryggislykli frá ThawteTM. |
[ 17. júní 2003 ]
 |
|
Jæja þá er að koma nýr hugbúnaður fyrir Infinity USB brennarann og verður hann nú einnig með Phoenix Mode. Ég var rétt í þessu að ljúka við viðbótarþýðingu hugbúnaðarins svo við skulum vona að útgáfan verði komin innan fárra daga. Vöntunin á phoenix mode hefur fram að þessu verið það eina sem hægt hefur verið að setja útá þessa frábæru græju. En semsagt fullkomnun á ferðinni. Verðið á brennaranum er kr. 14.800.- og hugbúnaðurinn sem fyrr segir með Íslensku sem valmöguleika. [ SJÁ FREKAR ] |
[ 16. júní 2003 ]
 |
|
Að gefnu tilefni er ég búinn að setja upp lista yfir þær stöðvar sem opnast með FunCard og 6in1 skrám og er þeim raðað upp eftir afruglunarkerfum. Þið athugið að svo eru margar sjónvarpsrásir sem opnast undir hverri stöð. [ SKOÐA LISTANN ] |
[ 14. júní 2003 ]

- Fréttatilkynning
|
Jæja þá er komin endanleg niðurstaða í mál þeirra BBC-manna og það staðfest að þann 10.júlí nk. verða allar 8 rásir þeirra í opinni dagskrá [ LESA TILKYNNINGUNA ]. Þú getur smellt á myndirnar til að kíkja á dagskrá hverrar stöðvar.
Kv. Steini
[ 13. júní 2003 ] Jæja þá er hægt að staðfesta að nýja Dreamcardið, sem farið er að selja, virkar. Hversu lengi veit náttúrulega enginn er er á meðan er...
 |
|
Hins vegar vil ég benda áhugasömum á að sumir þeirra aðila sem auglýsa kortin eru skaðræðisgripir og fjöldi fólks hefur verið svikinn í þessum viðskiptum og því er öruggara að fara varlega. Til að mynda er kominn félagskapur manna á netinu sem hafa verið sviknir af Alan nokkrum Reeks, en fjöldi fólks sendi honum £280 + sendingarkostnað og fékk ekki einu sinni jólakort í staðinn svo þessi aðvörun er ekki að ástæðulausu... |
[ Sjá heimasíðu þeirra! ] Þessi varasömu fyrirtæki eru ELECTRONIC DIRECT - FUTURE DIGITAL og svo náttúrulega Alan Reeks sem er sagður á bak við bæði þessi fyrirtæki hvort eð er.
Sum fyrirtæki(eins og Pentacard uk) eru að selja svokallað Pentacard2 en það er selt á tæp 300 pund og það sem meira er að fólki er fengin skrá til að brenna á kortið en enginn veit enn sem komið er hvernig á að framkvæma það??? Ótrúlegt lið.
Nú er það bara spurningin hvort þessi nýju Dreamcards gefa hökkurunum nýja von um að brjóta upp lyklana eða hvort við verðum að spenda £305(kr. 36.000.- en það er verðið á DC) til að njóta Þórs vinar okkar á einni gráðu vestur.
Kv. Steini
[ 13. júní 2003 ]
Ég hef verið að nota JOKER CAMIÐ síðustu dagana og ég verð að segja að ég er stórhrifinn af þessu apparati. Þetta svínvirkar á Echostarnum (keyri á vers 0.70) og er bara frostfrítt með öllu. Magnað stykki. Fyrir þá sem forrita camið með fun5 og nota Infinity usb til þess. Athugið að stilla brennarann á Galaxy 3 og þá forritar hann 512k á kortið, en ef hann er látinn þekkja kortið sjálfvirkt velur hann það sem Funcard og þá brennir hann bara 16k sem dugar ekki fyrir Fun5 skrána.
Kv. Steini
[ 7. júní 2003 ]
Gleðilega hvítasunnuhelgi
Kv. Steini
[ 6. júní 2003 ]
Það spurðist út fyrir nokkru að Seca2 væri orðið hakkað en það reyndist full frjálslega farið með. Það sem er hins vegar komið er möguleiki á að edita(breyta) áskriftarkortum þ.e ef þú kaupir áskriftarkort með grunnáskrift þá getur þú editað kortið þannig að það opni allan pakkann. Ef einhvern vantar forritið... þá hafiði bara samband.
Kv. Steini
[ 6. júní 2003 ]
Enn eru engar staðfestar fréttir af Conax en þó hef ég verið að lesa að komin séu kort í gang í Noregi og séu þar seld fyrir offjár. Mér skilst að þetta séu ný Dreamcards og ef satt reynist er trúlegt að ekki sé langt að bíða þess að þetti verði opið fyrir okkur. En sem fyrr segir Þetta er óstaðfest.
Kv. Skrifarinn
------------------------------------------------------
[ ELDRI FRÉTTIR - APR - MAÍ 2003 - Lesa... ]
[ ELDRI FRÉTTIR - JAN - FEB - MAR 2003 - Lesa... ]
[ ELDRI FRÉTTIR - 2002 - Lesa... ]
|
|
| | | | |