SÖLUAÐILAR

   KÓDAR

   NYTSAMT

FRÉTTIR AF SKRIFA.COM - Jan - Feb - Mars 2003


[ 30. mars 2003 ]
Gleymdi að geta þess að nýji hugbúnaðurinn fyrir INFINITY USB brennarann er að sjálfsögðu einnig kominn í Download. Þetta er Version 1.20 Build 1183 og er með Íslensku sem valmöguleika í tungumálavalinu. - Kv. Skrifarinn

[ 29. mars 2003 ]
Var að smella inn, að gefnu tilefni, hugbúnaði fyrir MILLENIUM brenarann í Download. Ég er rétt að klára að koma upp nýjum tölvu- og netbúnaði hér heima fyrir og þess vegna hefur, því miður, lítill tími gefist fyrir skrifa.com síðustu vikuna. - Kv. Skrifarinn

[ 20. mars 2003 ]
Formula1 - Upplýsingar - Hér er smá tilraun svona rétt til að fá viðbrögð við. Hér getur þú fengið upplýsingar um tímasetningar æfinga og tímasetningu föstudagsæfinga og hvaða stöðvar helstar senda þetta út hverju sinni. Ath! Þið verðið að láta mig vita hvort þetta er eitthvað sem ykkur líkar. Skoðaðu málið! - Kv. Skrifarinn

[ 20. mars 2003 ]
Infinity USB á Íslensku - Var að ljúka við að þýða hugbúnað Infinity USB brennarans vinsæla, í samstarfi við Jacob Blichfeldt, hjá WB Electronics ApS. Jacob segir mér að hann reikni með því að hugbúnaðurinn verði gefinn út seint í kvöld eða nótt svo þangað til má ég ekki setja hann inn á síðuna, en um leið og hann verður formlega útgefinn mun ég smella honum beint inn hér á skrifa.com. - Skrifarinn.

[ 20. mars 2003 ]
Breyting - Vorum að breyta KIOSK dagskránni yfir á dönsku, en þar koma ALLAR myndir fram :-)

[ 15. mars 2003 ]
AÐVÖRUN! Athugið að það eru viða á netinu 'FAKE' útgáfur af Pentacrypt 1.14 og eru sagðar gerðar af Ushtar. Þetta er hins vegar sem fyrr segir falsað og er í raun gömul Globalcrypta sem þó hefur verið átt við. Margir hafa lent í vandræðum vegna þessa. Svo það borgar sig bara að vera rólegur...

[ 9. mars 2003 ]
S Var að gefnu tilefni að setja upp KIOSK Dagskrána. Þið smellið einfaldlega á linkinn og þá poppar upp dagskrá allra Kiosk stöðvanna í sérglugga. Nokkrir valmöguleikar. Þakka góðar ábendingar sem ég hef fengið víða að undanfarið.

[ 3. mars 2003 ]
Til sölu: Nýtt Magic Cam Vers 1.04, Magic Programmer. Funcard 6(m/1 Mb minni) og Season Interface. Áhugasamir geta mailað á mig á skrifa@skrifa.com eða hringt í síma 482 3929 & 893 5804.

[ 27. feb 2003 ]
Jæja þá er komin Pentacrypt útgáfa frá Ushtar með Conaxstuðningi fyrir allar gerðir Magic Cam, Pentacrypt 1.11 Final.
ECHOSTAR EIGENDUR ATHUGIÐ! Þessi Penta opnar ekki KIOSK rásirnar nema að einnig sé haft tómt Conax/Irdeto eða annað Magic cam í móttakaranum. Aðrar rásir opnast fínt. - Þeir Echostar eigendur sem á annað borð eru með Season Interface ættu að sleppa því að uppfæra frá t.d Penta 1.09 í 1.11 því með því móti reynir móttakarinn fyrst að opna Kioskinn með MM en fer síðan yfir á Sesonið og því lengist bara opnunartími Conax-rásanna.
Einhverjar fleiri móttakaragerðir eru í sömu vandræðum og væri gott að fá einnig fréttir af þeim. En samt... innilega til hamingju!

[ 23. feb 2003 ]
Vorum að henda inn nokkrum forritum í DOWNLOAD, td. Baud&Port editor sem er örsmátt forrit sem opnar lincardemu.lc og breytit comportinu og baudreitinu og vistar svo skjalið. Einnig LinCardEmuWin32 og irdeto.dat febrúar skránni fyrir þá sem eru að byrja í þessu.

[ 21. feb 2003 ]
SEASON INTERFACE - CONAX EMULATOR - THOR 1°W - LEIÐBEININGAR í máli og myndum.
Vorum að skella upp síðu með öllum upplýsingum fyrir þá sem vilja nota season interface og nota til þess Linux ræsidisk annað hvort með Conaxemuv.2.1 eða LinCardEmu BootDisk Writer. Öll forrit sem til þarf svo sem emulatorarnir og TextPad, sem er ritill sem styður Linux, eru komnir á síðuna DOWNLOAD. Þá er bara að fara að lesa og skoða. Þið sem þekkið til þessa vinsamlega lesið síðuna yfir fyrir mig og látið mig vita ef þið rekist á villur.

[ 28. jan 2003 ]
Vorum að bæta inn valglugga fyrir fótboltann. Þú hægri klikkar hér á þessari síðu og færð þá upp glugga þar sem þú velur 'Fótboltinn' og þá opnast síða sem er með dagskrána fyrir alla leiki sem sýndir eru á gervihnöttunum, með upplýsingum á hvaða hnetti, klukkan hvað og svo framvegis. Inn á síðunni, sem er sjálfvalin með British League & Cup Football getið þið svo valið aða möguleika... reyndar alla möguleika. - Áfram KA.

[ 28. jan 2003 ]
Þá er búið setja inn leitarvélina okkar. Þú hægri klikkar bara hér í fréttaglugganum og þá birtist valmöguleikinn 'Leitarvélin' Skýrir sig sjálft.

[ 9. jan 2003 ]
Erum komin með nýjan glugga sem hægt er að framkalla með því að hægrismella á aðalsíðuna hérna, og nokkrar fleiri, og þá kemur upp val um hinar og þessar síður sem innihalda ýmislegt góðgæti fyrir okkur gervihnattaáhugamenn og konur.

[ 8. jan 2003 ]
Vorum að breyta download síðunni. Þurftum að taka út beintenginguna á duwgati.com en settum í staðinn inn helstu forritin sem menn eru að brasa með þessa dagana. Vinsamlega komið með ábendingar um hugbúnað sem vantar. Einnig sendi Duwgati mér uppfærða orðabók...þó enn sé hún á ensku... og verður sjálfsagt til framtíðar |-:)

[ 7. jan 2003 ]
Vorum að fá fréttir af Conax úrlausnarefni nr. 1 þ.e að komnar séu lausnir á því að opna Conaxinn og væri gaman að fá betri fréttir af því máli.

[ 4. jan 2003 ]
Vorum að bæta við umfjöllunina um Funkortin. Vantar góða mynd af Funcard 6. Ef þið rekist á hana megið þið senda mér upplýsingar um hana eða myndina sjálfa á steini@skrifa.com

[ 2. jan 2003 ]
Þá er loksins komin upp samanburðarsíðan yfir afruglarana. [ AFRUGLARAR SAMANBURÐUR ]
Athugið að síðan opnast í nýjum browser sem þú lokar bara eftir notkun með því að smella á X-ið upp í hægra horninu.

[ 1. jan 2003 ]
Með því að smella hér á linkinn Viltu gera skrifa.com að upphafssíðunni þinni? Þá er bara að klikka og síðan á YES - Einfalt UPPHAFSSÍÐA? eða vinstra megin í linkunum, getur þú gert Skrifa.com að þeirri síðu er opnast sjálfvalin, þegar þú ræsir browserinn(sama síða og kemur þegar þú smellir á HOME efst í browsernum. Það kemur upp gluggi þar sem smellt er á Yes og búið.

[ 1. jan 2003 ]
Ef þú hægri klikkar hér á síðunni kemur upp lítill gluggi með slóðum á staði sem gott er að heimsækja. Allt sem þarf er að hægri smella með músinni og velja þann stað sem þú ætlar kíkja á.

[ ELDRI FRÉTTIR - Lesa... ]