FTA mótakaranir eru kallaðir þeir móttakarar sem eru á kortalesara og c.i slota og eru þaraf leiðandi eingöngu ætlaðir til þess að taka á móta órugluðu signali þ.e Free To Air. Þetta er talsvert úrval stöðva og nú nýverið færði BBC sig úr læstu kerfi yfir í FTA svo þar bættust við góðar rásir bæði fyrir börnin og ekki síður fyrir þá sem eldri eru.
Búnaður til þessarar móttöku er á góðu verði og er algengt að móttakarnir kosti á bilinu 20 - 35 þúsund.
Hér neðan við getur að líta nokkrar gerðir þessara móttakara.
|
 |
Strong SRT4155 "free to air" gervihnattamóttakarinn, sýnir allar stöðvar sem eru óruglaðar á gervihnöttunum. Móttakarinn er einfaldur í allri notkun og snöggur að skipta um rásir. - Notendavænt umhverfi og einfaldur að læra á.
Söluaðilar: Eico - Öreind
|
 |
HSS730 FTA samkvæmt heimildum sölaðilans er þessi móttakari frá Hyundai hins mesta græja eða eins og þeir segja...'Þessi er fullkominn móttakari sem sýnir allar opnar rásir.'
Söluaðilar: Öreind
|
 |
HUMAX F2-Green FTA
Digital Free-to-Air móttakari frá Humax sem sagður er mjög lár í rafmagnsnotkun. Hefur getu til að innihalda allt að 4000 sjónvarps og útvarpsrásir. Uppfærsla á hugbúnaði fer fram í gegnum gervihnött. Söluaðilar: Elnet
|
 |
Digiality FTA 200 er dönsk framleiðsla og eru skjámyndir móttakarans til á eftirtöldum tungumálum:
Dönsku, Sænsku, Norsku, Finnsku, Ensku, Rússnesku, Þýzku og Frönsku. Hann hefur vandað EPG(
Electronic program guide) og er með 4 favourite lista.
Söluaðili: Elnet
|
 |
Unnisat 1 dvb þessi móttakari er með möguleika á 1000 rásum, inniheldur favorite menu, 3 leiki og er með svokölluðu 'Loop Thru' þ.e hægt er að tengja við hann annan móttakara.
Söluaðili: Elnet
|
 |
MAXIMUM FTA 100
þessi móttakari er mjög huggulegur útlits í silfruðum kassa og lítill um sig. Hann styður DiSeqC 1.2.
Söluaðili: Elnet
|
Athugið þessi list er ekki tæmandi og aðeins hugsaður sem sýnishorn af því sem í boði er og rétt til að undirstrika nauðsyn þess að fara á sölustaði og kynna sér verð og eiginleika móttakaranna. Oft eru söluaðilar með tilboðspakka þ.e.: bjóða móttakara, disk, og lnb nema, saman í pakka á góðu verði.
|