ATMEL - FUNCARDS - FUNKORT
 |
Aðdáendur Funkortsins velja það vegna mikils minnis þess, en einnig vegna þess að ATMEL örgjörfinn (90S8515) er mjög hraðvirkur sem munar miklu þegar meðan á flettingu stendur. Því hraðvirkar sem kortið er þeim mun fyrr byrtist myndin á skjánum að lokinni flettingu á milli rása.
Hins vegar má ekki ofmeta gildi hraðvirkari örgjörva, því kortið er aðeins að hluta ábyrgt fyrir töfum, þegar flett er á milli rása.
ATMEL örgjörfinn er sem fyrr segir uppbyggður með sitt eigið innra minni, en síðar bætir Funkortið við auka Eepromi uppá 64Kbit(8Kbyte).
< - - - Hér til hliðar getur þú séð venjuleg Funkort af 24C64 (8Kb)Eeprom gerðinni. |
Til viðbótar við venjulegu útgáfuna, myndin að ofan, eru fleiri útgáfur fáanlegar allavega myndskreyttar. Hér neðan við sérðu (frá vinstri til hægri) PURPLE GALAXY, OPEN PLATFORM FUNKORT og síðan bakhliðina á OPEN PLATFORM kortinu. Og þrátt fyrir breytt útlit eru þau enn búin sama búnaði þ.e.: (90S8515 + 24C64).
Hér fyrir neðan sérðu síðan sum hinna nýrri FUNKORTA sem búin eru stææra EEPROM
Vinstra megin gefur að líta GALAXY PRUSSIAN, einnig þekkt sem FUNKORT 3. Það er með 16Kb Eepromi
Í miðið er svo GALAXY PRUSSIAN 2 eða FUNCARD 4. Það er með AT90S8515 + 24LC256 þ.e 32Kb Eeprom.
Svo til hægri, er OPEN PLATFORM FUNCARD 4. Það er einnig með 32Kb Eeprom.
Hér er síðan Open Platform Funcard 5, fram- og afturhlið:
Þetta kort er með AT90S8515 & EEPROM 24C512 þ.e 64Kb Eeprom
Þá eru einnig komið á markaðinn Funcard 6 sem er með AT90S8515 + EEPROM 24C1024 sem sagt 128 Kb Eepromi, þ.e. 1 Megabæti í minni. Lengst til hægri sjáum við svo Open Platform ATmega 163 kort. Atmel ATmega163 heilinn með 24LC256 minnisrásinni er talinn öflugasti heilinn og sá með mestu reikningsgetuna.
|
 |
 |
 |
|