Þetta er Cas Interface unitið(parallel kapalinn vantar)

Cas Interface

Þetta er nýtt tól frá Duolabs sérstaklega gert til þess að forrita hugbúnað og Flash minnið í multicömum hverskonar eins og t.d Magic Module, Universla Cam, Global Cam, Axas og fleirum, eftir að þau hafa klikkað t.d eftir að hafa eyðst út eftir svokallaðar tímasprengjur sem penta 1.10 og 1.11 innihéldu og straujuðu til að mynda óorginal útgáfurnar í stríðum straumum síðastliðið vor.

Forritarinn hér neðan við er tengdur í annan endann með parallel kapli við pc tölvu en tengingin út er pinnatengi sem flatkapall er tengdur við og liggur í CAS Kortið sjálft sem síðan er stungið í t.d Magic Camið(eins og gömlu forritunareiningunni) og því síðan stungið í móttakarann til þess að camið fái straum þaðan.

Cas forritarinn        

Tengja þarf útværan 9 Volta spennugjafa(spennubreyti m/+ í miðju) við Cas Forritarann. Þú hefur síðan val um hvort þú hleður inn nýjum Loader/Flashi eða bara nýjum hugbúnaði. Þú getur einnig eytt út hvort tveggja hugbúnaði camsins eða loadernum. Það sem til þarf er Pc tölva með Windows 98/ME/2000/XP stýrikerfi og Parallel porti(LPT 1) Portið þarf að vera stillt í Biosnum á: ECP+EPP
Athugið að móttakarinn verður að vera stilltur á Free To Air rás þegar þessi aðgerð fer fram



Skjámynd af hugbúnaði Cas Interface


CAS FORRITUNARSETTIÐ fæst á VERSLA.COM og kostar kr. 15,900.
Nú geta menn því hætt að senda cömin erlendis til viðgerðar, sem bæði hefur verið dýrt og seinlegt.

Og þar fyrir utan hefur fram að þessu þurft að opna þau og fjarlægja chipsettið úr caminu og forrita það í sérstökum forritara og síðan að lóða það aftur í camið. Þetta, á hinn bóginn er einföld aðgerð sem flestir ættu að geta framkvæmt(með réttum leiðbeiningum) og menn þurfa ekki að biða jafnvel vikum saman eftir caminu.

Hugbúnaðinn fyrir CAS FORITUNARBÚNAÐINN er hægt að nálgast með því að smella HÉR - Athugið að hugbúnaðurinn er 5,11 MB (5.365.784 bytes) og tekur því dálitla stund að hlaða honum niður.

Leiðbeiningar(Manual) fyrir CAS FORITUNARBÚNAÐINN er hægt að nálgast með því að smella HÉR - Athugið að Leiðbeiningarnar eru á ensku og er á pdf formati. Þær eru 1,20 MB (1.259.665 bytes) og tekur því dálitla stund að hlaða þeim niður.
Til þess að geta opnað pdf skjöl þarf tölvan að vera með Acrobat Reader. Hann er hægt að nálgast HÉR