SÖLUAÐILAR
   KÓDAR
   NYTSAMT
   ÁHUGAVERT
FORRITUN Á MAGIC CAM


Forritun MM (Magic Module/ Magic Cam) fer fram með þeim hætti að forritunareiningu er stungið í camið, þar sem það er staðsett í móttakaranum, en einingin er tengd við PC tölvu með 9 pinna RS-232 serialkapli og sérstakt forrit er síðan notað á tölvunni til þess að senda hugbúnaðinu inn á camið. Sjá neðar!

Athugið! oft eru kömin seld með hugbúnaði og þá þarf ekki að framkvæma þessa aðgerð nema vegna uppfærslu á hugbúnaði. Algengustu gerðir hugbúnaðar sem notaðar eru á MM eru PentaCrypt 1.09 og TetraCrypt 1.0. (Sjá Download)


Hér neðan við er lítil skýringarmynd:


Jæja skellum okkur í forritunina:

Þetta þarftu:


  • PC Tölva með Magic Module Loader* forritð innsett
  • Serial kapal
  • Magic Cam... að sjálfsögðu
  • Magic Cam forritunareiningu
  • Móttakara með Common Interface sloti (CI rauf)

    Í byrjun þarftu að nálgast hugbúnaðinn Magic Module Loader til verksins (*Magicload.exe), og þú getur sótt hann [ HÉR ]
    (!) Tölvan er síðan tengd forritunareiningunni með seríal kapli og einingunni stungið í Magic Camið sem haft er í móttakaranum og hann hafður í gangi(ON)

    Forritunin, sem send er með Magic Module Loader í gegnum forritunareininguna og inn á Magic Camið, heitir í þessu tilfelli Penta 1.09

  • SVONA GERIST ÞETTA :


    1. Tengdu tölvuna með venjulegum 9 pinna seríal kapli við forritunareininguna.


    2. Innsettu Magicload.exe á tölvuna hjá þér og ræstu forritið.
    3. Smelltu á "Settings" og veldu rétt COM port fyrir serial tenginguna sem þú ert að nota.
    4. Settu forritunareinguna í Magic Modulið


    Hér er tengingin við Camið komin á.
    5. Smelltu á "Program Module" þá opnast hefðbundinn 'Open File' gluggi þar sem þú velur/finnur Penta 1.09 skjalið, þar sem þú hafðir áður vistað það á tölvunni.


    6. Smelltu á 'Upload To Module'
    Forritun í gangi...
    7. Magic Modulið er klárt!
    Athugið! Hægt er að forrita önnur module /cam t.d Universal Cam og Global Cam með sama grunnhugbúnaði í gegnum Magic Cam forritunareininguna og er það gert eins og hér er sýnt.
    Nú getur þú sótt þér t.d 6in1 skrá á netið og brennt hana inn á Funcard 2, 3, 4, 5 eða 6 og farið að skemmta þér yfir öllum opnu stöðvunum!

    Þú þarft FLASH skrá og EEPROM skrá til að brenna á Funcardið. Gætið að því að um nýjar skrár sé að ræða og skrifið þær með t.d Infinity USB á Funcardið

    Nokkuð bar á því sérstaklega síðastliðið vor að MM hætti að virka vegna svokallaðrar tímasprengju sem ákveðinn hugbúnaður innihélt og þurftu menn þá að senda kömin erlendis til viðgerðar. Nú er komin auðveld lausn á þessu máli með tilkomu CAS INTERFACE. Þetta er sérstakt kit sem notað er til að endurbyggja(programmera) chipsettin í MM og fleiri multikömum, hætti þau að virka. Til þess er sem fyrr segir notað svokallað CAS INTERFACE einnig kallað CAS CARD.