MÓTTAKARAR
Athugið! Hér er eingöngu skrifað um DIGITAL móttakara.
Gervihnattamóttakari er í raun verkfæri sem breytir gervihnatttasignali í sjóvarpssignal með aðstoð LNB nemans framan á diskinum, og gefur okkur möguleika á að skipta á milli stöðva og gervihnatta. Sum þessara merkja eru FTA þ.e Free To Air, en flest eru þó ekki frí. Móttakararnir hafa ýmist innbyggð CAM(afruglara) og/eða slot fyrir staka afruglara.
Það eru mörg fyrirtæki (kölluð providerar) sem lifa á því að bjóða allskyns þjónustu í gegnum gervihnetti. Pay TV eða læst sjónvarpsdagskrá er ein þessara þjónusta ásamt svo Internetþjónustu og öðrum gagnaflutningi.
Læst sjónvarpsdagskrá er send út kóðuð. Móttakarainn fær sjónvarpsmerkið, en geti hann ekki afkóðað það, hundsar hann það, og sýnir á skjánum skilaboð þess eðlis að þessi rás(channel) sé scrambled(rugluð)
En með áskrift að slíkum provider getur þú fengið í hendurnar SMARTKORT með áskrift og þú skellir því í viðeigandi CAM og getur þar með alsæll opnað allar þær rásir sem þú gerðist áskrifandi að.
En það er hins vegar eitt leiðinda vandamál í þessu öllu saman... Þú GETUR EKKI gerst áskrifandi að öllum þeim stöðvum er þér dettur í hug. Já ég veit að þetta hljómar asnalega en ef við skoðum málið þá áttum við okkur á því hvers vegna þetta er.
SMÁ DÆMI:
Fyrirtæki eins og t.d Canal Digital borgar offjár til kvikmyndaframleiðenda fyrir sýningarrétt á myndum þeirra. Upphæðin fyrir sýningarréttinn er ákvörðuð miðað við hugsanlegan áhorfendafjölda á því tiltekna útsendingarsvæði. Geti Canal Digital hinsvegar einangrað áhorfendurna við t.d. Holland þurfa þeir að greiða rétthöfunum mun lægri upphæð en ef þeir biðu áskrift til kannski allrar Evrópu. Svo ástæðan fyrir því að ekki er hægt að gerast áskrifandi að þessu öllu saman eru þessar kröfur kvikmyndaframleiðendanna sem providerarnir neyðast svo sem til að skrifa undir.
En eins og við þekkjum frá t.d mússík geiranum, t.d. í sambandi við Napster, Gnutella, Kaza og fl., þá lætur áhugasamur gervihnattamaður þetta ekki þetta hindra sig í að njóta ávaxtanna.
Jæja aftur að aðalatriðinu., þ.e MÓTTÖKURUM. Nánar tiltekið Common Interface Móttökurum.
Það eru 2 gerðir af C.I. móttökurum.
1. Móttakarar sem eru eingöngu með innbyggðu CAMi.
Þeir eru fyrst og fremst hugsaðir til að taka á móti sendingu frá einum provider og eru lítt breytanlegir. Sértu í alvöru að hugsa um að fá þér móttakara skaltu ekki einu sinni pæla í þessari týpu sama hve ódýrt hún er boðin.
2. Móttakarar sem hafa laus slot fyrir stök CÖM
Hafirðu trú á því að gervihnattasjónvarp sé næsta hobbýið hjá þér þá er þetta týpan sem þú kaupir. Í þessum móttökurum getur þú smellt inn hvaða CAMI sem er, svo þú hefur miklu meiri möguleika. Oft eru þeir með 2 slot fyrir stök CÖM. Þeir geta því opnað grunnkóðun margra providera svo sem VIACESS, SECA, CONAX og fleiri og eru því stundum kallaðir Multicrypt Móttakarar.
Svo eru einnig til móttakarar sem eru sambland af þessu tvennu þ.e bæði með innbyggt cam(embedded) og einnig slott fyrir 1-2 auka.
Í dag er einnig farið að selja Digital Móttakara með innbyggðum hörðum diski, til upptöku efnis og er algengt að um sé að ræða ca. 80 - 250 Gigb disk, sem getur þá tekið upp allt að 250 klukkustundir af útsendingu.
Nýji Echostarinn(DVR 5020 HDD týpan) er einnig með svokallaða lifandi pásu þannig, að þú smellir bara á pásu þegar þú skreppur eftir kaffibolla og síðan aftur á PLAY þegar þú sest niður aftur og hefur þá frestað allri útsendingunni sem því nemur, og því algjör óþarfi að missa af markinu sem alltaf er skorað þegar maður bregður sér frá. Þessi móttakari er einnig með MP3 spilara og er með USB tengi þar sem hægt er að færa lög í MP3 formati frá tölvunni og yfir á móttakarann. Einnig er hann með tuner sem býður uppá að taka upp á 4 rásum og horfa á eina á fullum skjá á meðan..en vera einnig með mynd í mynd smáskjá, með enn annarri rás í gangi svo að það er að mörgu að huga þegar verslað er.
|