SÖLUAÐILAR
   KÓDAR
   NYTSAMT
   ÁHUGAVERT
SKY KORTIN

Sky kortin innihalda 'gifta kóda' þ.e þegar þú hefur gerst áskrifandi að SKY og fengið slíkt kort í hendurnar þarftu að setja það í móttakarann og hafa hann stilltann á 28°e og bíða þar til að SKY hefur opnað fyrir áskriftina á þennan tiltekna móttakara í gegnum þetta tiltekna kort. Þannig má segja að SKY hafi gefið kortið og móttakarann saman. Þetta þýðir það, að ekki er hægt að taka kortið og fara með það í annan mótttakara, eftir að það hefur einu sinni verið gert virkt.

Yfirleitt þarf að greiða, ákveðna fasta upphæð, fyrir áskriftarkortið í byrjun(nokkurs konar þjónustugjald til þeirra sem annast að útvega áskriftina og sjá um að halda utan um heimilisföng og annað í Englandi, en það þurfa menn að hafa til þess að geta gerst áskrifendur) og síðan áskriftarupphæðina í gegnum kreditkort(beint til SKY) einu sinni í mánuði. Algengasta áskriftin kostar 38 bresk pund á mánuði(4,744.46 ISK m/v gengi 2. ágúst 2003)