SÖLUAÐILAR
   KÓDAR
   NYTSAMT
   ÁHUGAVERT

GullKort - PIC Cards (SMD Wafer og Gold Wafer)


Hér neðan við til vinstri er SMD WaferCard en GoldWafer hægra megin. Raunveruleg nöfn þessara korta eru reyndar PIC CARDS sem er dregið af örgjörfa tegund þeirra, (PIC 16F84). Þessi kort eru búin 2Kb external eeprom minni (24C16).


Á SMD Wafer kortinu getur þú auðveldlega séð bæði chip settin(dökku kubbarnir neðst á myndinni) Stærra chipið(kubburinn vinstra megin) er örgjörfinn, en minna chipið er minniskubbur. Þetta kort er afar mikið notað erlendis enn þann dag í dag og er helsta ástæðan sú, að fyrir ekkert eitt kort hefur verið skrifað jafn mikið af allskonar hugbúnaði og þetta.


Á SMD Wafer kortinu sérðu 8 kontakta. Þessir tveir sem eru lengst til vinstri (númer 4 og 8) eru ekki á þeim öllum. En séu þeir á kortinu er það vísbending um að hægt sé að addressa eepromið beint. Í því tilfelli er ekki nauðsynlegt að nota 'Through PIC programming'. Með því að nota direct programming lines getur þú forritað eepromið óháð PIC-inu. Forrit eins og ICprog getur auðveldlega addressað eepromið sértu með rétta programmerinn.


Sum CÖM þarfnast þess að þú útilokir contakta 4 og 8. Ef slíkur afruglari(CAM) skynjar þessa kontakta, mun hann ekki virka eðlilega. Svo til að afruglarinn virki nú sem best setur þú bara smá límband yfir kontaktana. Þurfir þú síðan að forrita kortið seinna, þá tekur þú bara límbandið af. Ekki flóknara en það.


SMD Wafer Goldwafer



GoldWafer kort koma í mörgum útgáfum, mismunandi útlits. En sama hvað þeir prenta á þau þá er virkni þeirra enn sú sama. Enda ekki nema eðlilegt því þau eru eins útbúin þ.e. með (16F84 + 24C16). Hér fyrir neða sérðu Gold Galaxy visntra megin, og Open Platform GoldWafer til hægri.





BLUECARD


En um leið og ný tækni krefst meira minnis, hefur GoldWafer einnig verið uppfærður með svolitlu aukaminni. Nú er svokallað Bluecard fáanlegt, sem samþættir 16F84 útgáfuna við 24C64 útgáfuna.


BluCard er með 8Kb af minni sem er 4 sinnum meira en upphaflegi GoldWafer-inn.