NÝJA SPJALLBORÐIÐ - HVERNIG?
Svona lítur síðan út sem birtist þegar smellt er á linkinn á spjallborðið. Sértu ekki nú þegar orðinn skráður þá smellir þú einfaldlæega á hnappinn REGISTER(Sjá á myndinni hér neðan við).
Þá birtist þessi mynd hér neðan við. Þar skrifar þú inn það notandanafn sem þú vilt nota í reitinn 'Choose username' og svo framvegis... og endar með því að smella á 'REGISTER' sjá skýringartexta á myndinni hér neðan við.
Þegar þú hefur smellt á Register kemur upp síðan hér neðan við, en þar hakar þú við: 'Always Stay Logged In' (svo spjallborðið þekki þig næst þegar þú ferð inná það) og síðan smellir þú á hnappinn 'LOGIN'
Þá birtist þessi síða hér neðan við, þ.e þú ert komin(n) inná borðið og til hamingju með það. Þar verður þú að KYNNA ÞIG(sjá skýringarmynd) og að sjálfsögðu að LESA REGLURNAR. Þú skoðar þann póst sem þú vilt með því að smella á nafn hans. Og kemst alltaf á upphafssíðu með því að smella á hnappinn HOME Segjum nú að þú sért búinn að lesa reglurnar... smelltu þ.á á Kynna sig hérna
þá birtist þessi síða hér neðan við. Þar smellir þú á hnappinn NEW TOPIC
Þá kemur þessi síða hér neðan við upp. Þar skrifar þú titil kynningarinnar í 'Subject' reitinn, en kynninguna sjálfa í stóra hvíta gluggann, og smellir síðan á hnappinn 'POST'. ATH! Með því að smella á 'Aditional Options'(vinstra megin neðarlega) koma fram valmöguleikar um t.d að fá sent e-mail þegar viðkomandi pósti hefur verið svarað.
OK nú ert þú búinn að smella á POST og þá birtist þessi síða hér neðan við. Þar sérðu að kynningin sem þú ritaðir rétt áðan er kominn á sinn stað meðal hinna kynninganna. Smelltu á nafn kynningarinnar.
þá birtist hún eins og sést á myndinni hér fyrir neðan. En eins og öllu kurteisu fólki sæmir þá vilt þú eðlilega bjóða aðra notendur velkomna þegar þeir skrá sig á borðið(eins og þú verður boðinn velkominn) og í slíkum tilfellum smellir þá á hnappinn REPLY Það sama á við þegar venjulegum póstum er svarað. -
En segjum nú að þú sért að svara pósti og hafir smellt á REPLY þá birtist ámóta mynd og hér neðan við.
Auðvitað eru mun fleiri möguleikar en hér hefur verið tiplað á en þetta ætti að duga öllum til að komast af stað og hafa af borðinu full not. ATHUGIÐ! - Það er skylda að kynna sig á borðinu og til að mynda er það forsenda þess að þér sé úthlutað AUKNUM RÉTTINDUM á borðinu. Svokölluðum NÚLL PÓSTURUM þ.e þeim sem ekki hafa kynnt sig innan tiltekins tíma verður EYTT. Það hafa allir möguleika á því að taka þátt í umræðum á borðinu og mesti misskilningur að menn þurfi að hafa sérstakt vit á þessum hlutum til að vera með. Ef allir hugsuðu þannig að þeir ætluðu sér bara að lesa pósta annarra... ja.. hvaða pósta gætu þeir þá lesið? Og allavega drepur það engan að þakka fyrir veittar upplýsingar þeirra sem pósta! Kv. Steini |