 Hvernig brenna skal með Titanium progger!
|
Til að forrita Titanium card þarftu Númer eitt Titanium Progger, Phoenix brennara eða annan brennara sem hefur Phoenix ham. T.d. Infinity USB/PH. Mundu bara að smella honum í Phoenix ham áður en þú kveikir á Titanium Proggernum. |
 |
Þegar þú ræsir Titanium Progger V1.8.1 muntu sjá skjámynd líka þessari hér fyrir ofan. Það fyrsta sem þú gerir er að fara í settings flipann og velja rétt Com… …port. Síðan smellir þú smella á GRÆNA(Connect) örvahnappinn vinstra megin.
|
 Nema að Titaniumkortið þitt sé með V01.03 OS instölluðu fyrir þá muntu sjá skjámynd þar sem þér er boðið að uppfæra OS-ið(Stýrikerfi kortsins) í 01.03 - Þú samþykkir þetta einfaldlega með því að smella á YES('Ja' á myndinni hér fyrir ofan) þ.e hnappinn vinstra megin ef programmerinn er á einhverju enn öðru tungumáli. Þá fer þetta í gang og getur tekið smá stund… …eftir tölvum og brennurum. Þegar þessu er lokið og skilaboðin líta út eins og á myndinni hér fyrir neðan.. þá smellir þú á RAUÐA örvahnappinn og slekkur á Proggernum og kveikir síðan á honum aftur. Þá er þér boðið að uppfæra kortið í 01.05 sem þú samþykkir og ferð eins að og fyrr.
Meðan á þessum aðgerðum stendur scrolla tölur upp í Info glugganum.
Fáir þú upp OS not recognised error smellir þú bara á ERASE hnappinn, og síðan á RESET hnappinn og reynir aftur.
Athugið!
Það er áríðandi að þið leyfið þessari uppfærslu að klárast í friði. Þetta getur tekið nokkrar mínútur og stundum finnst manni að ekkert sé að gerast :-)
|
 |
Hér fyrir ofan er reiknað með að kortið sé forritað með 01.03 og því endar Card ATR línan á …11 01 03(sjá mynd) þessi lína endar á …11.01.05 eftir seinni hugbúnaðaruppfærsluna á kortinu.(01.05)
Athugið að Titaniumkort er ekki eins uppbyggt og til dæmis FunCard og því þarf að eyða eldri skrám út af kortinu áður en nýjar skrár eru brenndar á það, hafi kortið verið notað áður. Það er gert með ERASE hnappnum.
Sem sagt: Kortið þarf að vera í 'Virgin State' þegar það er forritað!...
…Hafir þú forritað kortið áður þá kemur einfaldlega OS not recognised error sem þú leysir með því að smella á ERASE, og þá þekkir proggerinn Osið og kortið.
OK nú er kortið klárt til forritunar, svo þá er bara að hlaða inn þeim skrám sem brenna skal á kortið. Það geta verið ýmist 2 eða 3 skrár eftir því hvað brúk skal hafa af kortinu og/eða hvað skrár eru notaðar.
1) Smellið fyrst á LOAD.HEX hnappinn og browsið þangað sem þið hafið vistað skrárnar og veljið Nafn_Skráar_Flash.hex og opnið hana.
2) Smellið síðan á LOAD.EEP hnappinn og opnið Nafn_Skráar_EEP.eep og opnið.
3) Farið loks í LOAD CR.HEX hnappinn og finnið skrána CRYPTKEY.HEX og opnið hana.
Síðan er bara að smella á BURN. Þá kemur upp smá pop-up gluggi sem spyr þig hvort þú viljir örugglega skrifa þetta kort og þú velur YES. Þegar brennsunni er lokið lítur þetta út eins og hér á myndinni að neðan.
Nú smellir þú á RAUÐA örvahnappinn og slekkur á proggernum og tekur kortið út… rekur það í Conax Camið og ferð að glápa… eða notar það sem gluggasköfu… allt eftir smekk. Kv. Skrifarinn
| HÉR ER ZIP FÆLL MEÐ ÖLLU SEM TIL ÞARF |
|
|
|
|