UM KORTIN

Kortin sem notuð eru í afruglarana eru æði misjöfn eftir því hvaða not maður hyggst hafa af kortinu og eins hinu í hvaða cam það er hugsað. Kortin eru flest í dag unnin í svokallaðri SMT/SMD tækni. Þessi kort, en samheiti þeirra er SmartCards, eru plastkort með innbyggðum örgjörfum og minni til að hýsa lyklaskrár til afruglunar á tilteknum afruglunarkerfum.

Funcardið er lang algengasta kortið sem notað er í dag. Það er til í misjöfnum útfærslum þ.e með misjafnlega miklu minni og flestir sem versla slík kort í dag taka FunCard 5 eða 6 þ.e 512kb eða 1024kb(1Mb)

Þrif á kontöktunum:
Á stækkaðri mynd af kontöktum korts hér vinstra megin sjérðu dökkar línur/rákir en þessar rákir eru einangrarar á milli aðskildra rása í kortinu. Smám saman kemur ryk og annar skítur í þessar rásir og eins koma svokölluð 'DragMarks' í kortið getur það af þeim sökum hætt að virka eðlilega. Gerist það skaltu finna þér hreint strokleður og hreinsa kontakatana með því. Þér er óhætt að nudda þetta vel og þú sérð auðveldlega þegar óhreinindin eru farin.

Minni kortanna: Menn ruglast auðveldlega þegar talað er um minni kortanna. Það kemur mestmegnis til af því hvaða einingakerfi er notað þ.e. minnistærðin er gjarnan nefnd í Kilobitum, þannig að kort sem iniheldur 24C16 táknar að kortið hafi 16 Kilobita, Og þar sem hvert Kilobæti(Kb) inniheldur 8 Kilobita, er 24C16 kort með 2Kb. - þannig að kort sem merkt er með 1024(128Kb) er 1 Mb.